Skip to content

Fréttir frá skrifstofu Gróttu

Skötuveisla í Gróttu

Íþróttaféalagið Grótta blæs til veglegrar skötuveislu í hátíðarsalnum 21. desember næstkomandi, frá kl 11.30-13.30. Boðið verður upp á skötu og saltfisk með öllu tilheyrandi! Hvað

LESA MEIRA »

Starfsmaður óskast

ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ GRÓTTA AUGLÝSIR EFTIR STARFSMANNI Í HLUTASTARF Í VALLARHÚS FÉLAGSINS Helstu verkefni og ábyrgð Helstu verkefni og ábyrgð Menntunar- og hæfniskröfur

LESA MEIRA »

Basil Gimlet kvöld Gróttu

Laugardaginn 16. nóvember verður haldið Basil Gimlet kvöld Gróttu, þar sem gleði og góð stemning mun ráða för! Dagskrá kvöldsins: Fordrykkur frá kl. 19:00 –

LESA MEIRA »

Valdimar Ólafsson – Minning

Valdimar Ólafsson, betur þekktur sem Valdi, lést þriðjudaginn 17. september sl. Valdi hóf störf sem vallarstjóri á Vivaldivellinum hjá íþróttafélaginu Gróttu í september 2016 og

LESA MEIRA »

Hættum ekki fyrr en lokaflautið gellur

Viðtal við Grím Inga Jakobsson leikmann meistaraflokks Miðjumaðurinn knái Grímur Ingi Jakobsson framlengdi á dögunum samning sinn við knattspyrnudeild Gróttu út keppnistímabilið 2027. Grímur sneri

LESA MEIRA »

Nýr framkvæmdastjóri fimleikadeildar

Fimleikadeild Gróttu hefur ráðið Guðrúnu Jónu Stefánsdóttur sem framkvæmdastjóra Fimleikadeildar en hún hóf störf þann 1. ágúst síðastliðinn. Guðrún hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu í

LESA MEIRA »

Aðalfundir Gróttu 2024

Aðalfundir deilda Íþróttafélagsins Gróttu fóru fram miðvikudaginn 29. maí og fóru þeir fram í hátíðarsal félagsins. Ólafur Örn Svansson hélt um fundarstjórnina en fundurinn hófst

LESA MEIRA »

Aðalfundir Gróttu 2024

Aðalfundir aðalstjórnar og deilda Íþróttafélagsins Gróttu fara fram þriðjudaginn 30. apríl 2024 í hátíðarsal Gróttu. Aðalfundirnir hefjast kl. 17:30 og er gert ráð fyrir að

LESA MEIRA »

Leikdagur – Grótta x Stjarnan

Í kvöld fer fram risaleikur hjá stelpunum okkar þegar Stjarnan kemur í heimsókn í Hertz-höllina í 8 liða úrslitum Powerade-bikarsins. Fjölmennum, styðjum okkar lið og

LESA MEIRA »

Íþróttafólk Gróttu 2023

Kjör íþróttafólks Gróttu fór fram við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 1. febrúar síðastliðinn. Athöfnin fór fram í hátíðarsal Gróttu þar sem fagnað var íþróttaárinu 2023. Íþróttafólk

LESA MEIRA »

Hætt hefur verið við Þorrablót GRÓTTU!

Ákveðið hefur verið að fella niður fyrirhugað Þorrablót ann 27. janúar næstkomandi. Kostnaður við halda Þorrablót í Íþróttahúsinu hefur aukist verulega á milli ára og fyrirséð að nægileg þáttaka sé ekki til staðar svo blótið geti staðið undir sér.

LESA MEIRA »

Nýr framkvæmdastjóri Gróttu

Íþróttafélagið Grótta hefur ráðið nýjan framkvæmdarstjóra til forystu í félaginu. Jón Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Gróttu. Jón, sem er viðskiptafræðingur og mannauðsstjóri að mennt,

LESA MEIRA »

Jólakveðja Gróttu

Íþróttafélag Gróttu óskar öllu Gróttufólk nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum kærlega samfylgdina á líðandi ári og hlökkum mikið til

LESA MEIRA »

Rebekka með U15 í Portúgal

Rebekka Sif Brynjarsdóttir er nýkomin heim frá Portúgal þar sem hún var við keppni með U15 ára landsliðinu. Ísland var þar ein fjögurra þáttökuþjóða á

LESA MEIRA »

Grótta leitar að framkvæmdastjóra

Íþróttafélagið Grótta auglýsir til umsóknar starf framkvæmdastjóra félagsins. Leitað er eftir einstaklingi sem er kraftmikill leiðtogi sem fer fyrir hópi öflugra starfsmanna og vinnur að

LESA MEIRA »

Þorrablót Seltjarnarness 2024

Þann 27. janúar mun Þorrablót Seltjarnarness verða haldið með pompi og prakt! Endilega takið daginn frá og merkið hann með stórri stjörnu í dagatalið. Miðasala

LESA MEIRA »

Matthías Guðmundsson ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í knattsyrnu og Melkorka framlengir

Matthías Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna knattspyrnudeildar Gróttu. Matthías gerir þriggja ára samning við deildina en hann hefur síðustu tvö ár verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna Vals. Matthías á að baki glæstan fótboltaferil og 196 leiki í efstu deild á Íslandi en hann lék lengst af með Val.

LESA MEIRA »

Kvennaverkfall 24. október

Fjölmörg samtök kvenna, hinsegin fólks og launafólks hafa boðað til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október 2023, þar sem konur og kvár sem það geta eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf þann daginn.
Vegna þessa er ljóst að það mun verða röskun á þjónustu í íþróttahúsi Gróttu sem og gervigrasvelli þann daginn.

LESA MEIRA »

Kári Garðarsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Gróttu.

Kári Garðarsson framkvæmdastjóri Gróttu hefur látið af störfum. Kári hefur komið víða við í störfum félagsins í gegnum tíðina bæði sem þjálfari hjá handboltadeild og sem starfsmaður aðalstjórnar Gróttu. Sem þjálfari má helst nefna að Kári leiddi meistaraflokk kvenna til tveggja íslandsmeistaratitla, eins bikarmeistaratitils og eins deildarmeistaratitils.

LESA MEIRA »

Nýr þjónustusamningur undirritaður

Grótta og Seltjarnarnesbær undirrituðu í gærkvöldi nýjan þjónustusamning. Undirritunin fór fram í hálfleik á sigurleik Gróttu gegn ÍBV í Olís deild karla. Meginmarkmið samningsins er að tryggja öflugt og fjölbreytt íþróttastarf á Seltjarnarnesi. Með nýjum þjónustusamningi hækkar fjárframlag Seltjarnarnesbæjar til Gróttu sem kemur sér vel í rekstri félagsins.

LESA MEIRA »

Anna Úrsúla nýr verkefnastjóri Gróttu

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á skrifstofu Íþróttafélagsins Gróttu. Anna er Gróttufólki að góðu kunn enda uppalinn innan raða félagsins sem iðkandi hjá handknattleiksdeild. Hún var fyrirliði meistaraflokks þegar liðið varð Íslands-, bikar- og deildarmeistari árið 2015 og fylgdi því eftir með Íslandsmeistaratitli ári seinna.

LESA MEIRA »

Nýtt sundtímabil byrjað hjá KR

Ný æfingatafla Sunddeildar KR er komin á vefsíðu KR og opnað hefur verið fyrir skráningar. KR hvetur alla til að koma og prófa æfingar og taka þátt í metnaðarfullu íþróttastarfi með reynslumiklu þjálfarateymi.

LESA MEIRA »

Afreksskóli Gróttu

Afreksskóli Gróttu er hafinn. Skólinn markar upphaf nýs keppnistímabils og því frábært samhliða hefðbundnum æfingum og áður en þær hefjast. Skólinn er fyrir unglinga f.

LESA MEIRA »

Grótta leitar að verkefnastjóra

Íþróttafélagið Grótta óskar eftir því að ráða öflugan verkefnastjóra á skrifstofuaðalstjórnar félagsins í 100% starf. Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi og lifandi starf.Gert er

LESA MEIRA »

Aðalfundur Gróttu 2023

Aðalfundir deilda og ráða Íþróttafélagsins Gróttu fóru fram 27. apríl og fóru þeir fram í hátíðarsal félagsins.  Fundurinn hófst á tónlistaratriði Jón Guðmundsson frá tónlistarskóla

LESA MEIRA »

Örlygur lætur af störfum

Örlygur Ásgeirsson sem starfað hefur hjá okkur sem starfsmaður íþróttamannvirkjanna frá árinu 2016 við afar góðan orðstír lætur af störfum í dag 28. apríl nk

LESA MEIRA »

Aðalfundur Gróttu 27. apríl

Aðalfundir aðalstjórnar og deilda Íþróttafélagsins Gróttu fara fram fimmtudaginn 27. apríl 2023. Aðalfundirnir hefjast kl. 17:30 og er gert ráð fyrir að þeim sé lokið

LESA MEIRA »

Sjálfboðaliðar ársins 2022

Án allra sjálfboðaliðanna væri starf félagsins lítilfjörlegt. Fjölmargir koma að daglegu starfi Gróttu allan ársins hring og erum við þeim gríðarlega þakklát fyrir þeirra ómetanlegu

LESA MEIRA »

Sumarstörf hjá Gróttu

Íþróttafélagið Grótta auglýsir til umsóknar eftirfarandi sumarstörf árið 2023 fyrir ungt fólk. Íþróttafélagið vill ráða einstaklinga 20 ára og eldri (fædd 2003 og eldri)

LESA MEIRA »

Maksim þjálfari ársins 2022

Maksim Akbachev var valinn þjálfari ársins 2022 hjá Gróttu á hófi sem var haldið um miðjan janúar mánuð. Maksim er yfirþjálfari handboltadeildar og var aðstoðarþjálfari

LESA MEIRA »

Þorrablót Gróttu myndaalbúm

Þorrablót Gróttu fór fram síðastliðið laugardagskvöld í íþróttahúsi Gróttu og var mikið fjör fram rauða nótt. Hér er má finna myndir úr myndakassanum: https://fotoshare.co/e/TKYdHiRMAUlA6VnGuOGO1 Hlekkurinn

LESA MEIRA »

Antoine Óskar íþróttamaður æskunnar 2022

Antoine Óskar Pantano handknattleiksmaður er íþróttamaður æskunnar 2022. Hann er lykilleikmaður og fyrirliði í 3.flokk félagsins sem og í ungmennaliðinu. Hann hefur leikið með meistaraflokknum í Olísdeildinni og lék sína fyrstu unglingalandsleiki með U16 síðasta sumar.

LESA MEIRA »

Sara Björk íþróttakona æskunnar 2022

Sara Björk Arnarsdóttir knattspyrnukona er íþróttakona æskunnar 2022. Sara lék frábærlega með tveimur flokkum í sumar, þar sem hún var burðarás liðum bæði 3. og 4. flokks. Sara var á árinu valin í U-15 ára landslið Íslands og steig einnig sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins.

LESA MEIRA »

Freyja íþróttakona Gróttu 2022

Íþróttakona Gróttu 2022 var valin fimleikakonan Freyja Hannesdóttir á athöfn sem var haldin í Hátíðarsal Gróttu miðvikudaginn 11 janúar til að fagna íþróttaárinu 2022 hjá félaginu. 

LESA MEIRA »

Jólakort Gróttu 2022

Eins og fyrri ár efndum við til teiknisamkeppni í 4. bekk Mýrarhúsaskóla um að velja teikningu sem príðir jólakortið í ár. Laufey Beite Pálsdóttir átti teikninguna sem varð hlutskörpust og hún prýðir jólakort félagsins árið 2022.

LESA MEIRA »

Grótta semur við Spiideo

Handknattleiksdeild Gróttu hefur samið við sænska vefútsendingafyrirtækið Spiideo til næstu þriggja ára. Samningurinn felur í sér upptöku og streymi á öllum heimaleikjum meistaraflokka og yngri

LESA MEIRA »

Grótta er fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Íþróttafélagið Grótta fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á fundi aðalstjórnar í vallarhúsi Gróttu miðvikudaginn 2. nóvember síðastliðinn. Það var Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ sem afhenti

LESA MEIRA »

2. flokkur karla upp um deild!

Það var frábær stemning á Vivaldivellinum og fjöldi fólks í stúkunni þegar 2. flokkur karla tryggði sér sæti í B-deild Íslandsmótsins í lok september. Andstæðingar

LESA MEIRA »

CRAFT VEFVERSLUN

Nú er samstarfið okkar við hið sænska fatamerki Craft komin í fullan gang. Fimleika- og handboltadeild hafa lokið mátunardögum en það er ekki orðið klárt

LESA MEIRA »

VERBÚÐARBALLIÐ var geggjað

Verbúðarballið fór fram með pompi og prakt síðasta laugardagskvöld. Mæting á ballið fór fram úr björtustu vonum, fólk skemmti sér stórvel og ballið fór fram

LESA MEIRA »

Tilboð á mat fyrir Verbúðarballið

Rauða Ljónið og Veislan verða með tilboð á pinnamat sem er tilvalið í fyrirpartýið og um leið styrkir þú íþróttafélagið. En Grótta mun fá hluta af hagnaði sem safnast við sölu á matnum.

LESA MEIRA »

Hundahlaupið fór fram í gær

Alls tóku tæplega 100 hundaeigendur ásamt hundum sínum þátt í hundahlaupi UMFÍ og Non-stop dogwear sem fór fram síðdegis í gær.  Íþróttafélagið Grótta tók þátt

LESA MEIRA »

Drulluhlaup Krónunnar

Drullu- og hindrunarhlaup Krónunnar er hluti af Íþróttaveislu UMFÍ og 100 ára afmæli UMSK. Drulluskemmtilegt hlaup þar sem fjölskyldan vinnur saman að því að komast í

LESA MEIRA »

Andlát – Ásmundur Einarsson

Það voru miklar sorgarfregnir sem bárust okkur Gróttufólki sunnudaginn 24. júlí síðastliðinn að Ásmundur Einarsson hafi verið bráðkvaddur langt fyrir aldur fram. Ásmundur eða Ási

LESA MEIRA »

Garðar 80 ára í dag

„Ungum verzlunarmanni hjá Jes Zimsen í Hafnastræti datt í hug fyrir tæpu ári, að það væri ekki fráleitt að stofna knattspyrnufélag í hans bæjarhverfi. Félagið

LESA MEIRA »

Skráning á sumarnámskeið

Sumarstarfið verður með hefðbundu sniði og verður gott framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 -18 ára á Seltjarnarnesi, líkt og undanfarin ár. Skráning opnar þriðjudaginn 3. maí kl. 12:00.

LESA MEIRA »

Íþróttafélagið Grótta 55 ára

Íþróttafélagið Grótta fagnar í dag 55 ára afmæli sínu. Félagið var stofnað þennan dag, 24. apríl árið 1967. Í gegnum tíðina hafa ýmsar greinar verið stundaðar innan félagsins svo sem körfuknattleikur, kraftlyftingar, skák og skíði. Í dag starfar Grótta í þremur deildum, fimleika-, handknattleiks- og knattspyrnudeild.

LESA MEIRA »

Aðalfundir Gróttu 26. apríl

Aðalfundir aðalstjórnar og deilda Íþróttafélagsins Gróttu fara fram þriðjudaginn 26.apríl 2022. Aðalfundirnir hefjast kl. 17:30 og er gert ráð fyrir að þeim sé lokið kl.

LESA MEIRA »

Leikir & mót framundan

HANDKNATTLEIKUR Meistaraflokkur karla sigraði HK glæsilega í mikilvægum leik í gærkvöldi. Þeir heimsækja Hauka heim á Ásvelli á sunnudaginn (27.feb) og hefst leikurinn kl. 18:00.  Grill

LESA MEIRA »

Leikir & mót framundan

HANDKNATTLEIKUR  Næsta umferð í Olís Deild karla verður spiluð á miðvikudaginn næsta (23 feb) og þá er gríðarlega mikilvægur leikur þegar HK kemur í heimsókn

LESA MEIRA »

Leikir framundan

HANDKNATTLEIKUR  Meistaraflokkur karla stóð í ströngu síðasta þriðjudag þegar liðið tapaði gegn Fram. Liðið situr í 10. sæti í Olís deildinni og næsti leikur átti

LESA MEIRA »

Þorrablótinu frestað !

Þorrablót Gróttu sem árlega fer fram í janúar fellur því miður niður vegna áhrifa heimsfaraldurs. Þetta er annað árið í röð sem fella þarf niður

LESA MEIRA »

Jólakort Gróttu 2021

Jólakortsamkeppni Gróttu var haldin í þriðja skipti nú fyrir jólin. Eins og fyrri árin efndum við til teiknisamkeppni í 4. bekk Mýrarhúsaskóla um að velja teikningu

LESA MEIRA »

STARFSMANNAKYNNING GRÓTTU

Nafn: Hrafnhildur ThoroddssenGælunafn: BídóÉg ólst upp mestmegnis í Keflavík Fyrri störf: Ég var byrjuð að vinna sem sendill á lögfræðisstofu föður míns. Ári síðar hóf ég

LESA MEIRA »

STARFSMANNAKYNNING GRÓTTU

Nafn: Sólveig Soffía HerbertsdóttirGælunafn: SollaHvar ólstu upp:  AkureyriFyrri störf (nefna 2-3):  Var lengi á lyfjadeildinni á sjúkrahúsinu á Akureyri. Einnig vann ég á hamborgastaðnum á

LESA MEIRA »

STARFSMANNAKYNNING GRÓTTU

Nafn: Reynir Hólm Jónsson  Ræstitæknir í fimleikasal GróttuFyrri störf: Byrjaði sem messagutti hjá Eimskip haustið 1966 (þá 14 ára) síðar var ég háseti, lærði svo skipstjórn

LESA MEIRA »

STARFSMANNAKYNNING GRÓTTU

Valdimar Ólafsson vallarstjóri á Vivaldivellinum er næstur í starfsmannakynningu Gróttu. Gælunafn: Valdi, spaugsamir segja stundum Vi-Valdi. Fyrri störf: Vann í Hagkaup Nesinu í yfir 20

LESA MEIRA »

Haustfundur þjálfara Gróttu

Haustfundur þjálfara allra deild hjá Gróttu fór fram í gær í hátíðarsal félagsins. Fyrri hluta fundar var erindi frá skrifstofunni um praktísk málefni en aðalfyrirlesturinn

LESA MEIRA »

STARFSMANNAKYNNING GRÓTTU

Starfsmannakynningin heldur áfram og nú er komið að Örlygi Hinrik Ásgeirssyni. Gælunafn: oft kallaður Ölli, Fyrri störf (nefna 2-3): Kjötiðnaðarmaður, vann m.a. hjá Goða. Ég hef

LESA MEIRA »

STARFSMANNAKYNNING GRÓTTU

Nafn: Bogi Elvar Grétarsson, kallaður ElvarFyrri störf (nefna 2-3): Verslunarmaður í byggingarvörudeild í Kaupfélagi Austur Skaftfellinga á Höfn (KASK) og húsvörður í íþróttahúsinu Höfn í

LESA MEIRA »

STARFSMANNAKYNNING GRÓTTU

Á næstu vikum ætlum við að kynnast starfsmönnum mannvirkja Gróttu aðeins betur. Jóhanna Selma verður sú fyrsta en hún fagnar 1. nóvember næstk. 5 ára

LESA MEIRA »

Þjónustukönnun Gróttu 2021

Þjónustukönnun Íþróttafélagsins Gróttu var gerð dagana 2.-25. júní síðastliðinn. Könnunin var framkvæmd af Hólmfríði Önnu Martel Ólafsdóttur fyrir Gróttu. Almennt má segja að ánægja foreldra

LESA MEIRA »

Skráning iðkenda 2021-2022

Kæru forráðamenn, iðkendur og annað Gróttufólk Nú hefur verið opnað fyrir skráningar hjá öllum deildum og eru æfingatöflur vetrarins tilbúnar og aðgengilegar á vefsíðu félags.

LESA MEIRA »

Davíð Hlöðvers áfram aðstoðarþjálfari

Það er með gleði í hjarta að geta tilkynnt Davíð Örn Hlöðversson áfram sem aðstoðarþjálfara kvennaliðs Gróttu. Davíð Örn þarf varla að kynna fyrir Gróttufólki en hann hefur þjálfað nær alla flokka Gróttu undanfarin 20 ár. Að auk er hann silfurmerkjahafi félagsins og hefur leikið 144 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu.

LESA MEIRA »

Hrafnhildur Hekla framlengir

Handknattleiksdeild Gróttu hefur framlengt samninginn sinn um tvö ár við Hrafnhildi Heklu Grímsdóttur. Hún er 17 ára gömul og lék á sínu þriðja tímabili í meistaraflokki síðastliðinn vetur.

LESA MEIRA »

Ívar Logi Styrmisson til Gróttu

Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert eins árs lánssamning við Ívar Loga Styrmisson. Ívar Logi er fæddur árið 2000 og kemur frá ÍBV þar sem hann er uppalinn. Ívar Logi hefur leikið undanfarin þrjú árin í Olísdeildinni með ÍBV og á seinustu leiktíð skoraði hann 13 mörk í 20 leikjum.

LESA MEIRA »

Handboltaskóli og Afreksskóli Gróttu

Segja má að upphaf handboltastarfsins eftir stutt sumarfrí sé Handboltaskóli Gróttu og Afreksskóli Gróttu í handbolta í ágúst. Þá lifnar Íþróttahús Gróttu aftur til lífsins og allt verður eins og á að vera. Undanfarin ár hafa skólarnir verið vel sóttir en í ár mun Maksim Akbachev yfirþjálfari hafa veg og vanda að námskeiðinu ásamt frábæru þjálfurum deildarinnar.

LESA MEIRA »

Fjórir valdir í U15 ára landslið karla

Á dögunum var valið í U15 ára landslið karla og eigum við fjóra flotta fulltrúa í þeim hópi. Það eru þeir Alex Kári Þórhallsson, Antoine Óskar Pantano, Hannes Pétur Hauksson og Hrafn Ingi Jóhannsson.

LESA MEIRA »

Andri Helga gerir tveggja ára samning

Andri Þór Helgason hefur gert nýjan tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Andra Þór þarft vart að kynna fyrir Gróttufólki eða öðru handboltaáhugafólki en hann hefur verið einn albesti vinstri hornamaður Olísdeikdarinnar undanfarin ár. Andri er jafnframt fyrirliði Gróttuliðsins.

LESA MEIRA »

Satoru Goto heldur heim

Í lok maí kvaddi Satoru Goto okkur þegar hann flaug aftur heim til Japans eftir tíu mánaða veru hér á Íslandi. Goto kom til landsins undir lok júlí mánaðar í miðjum heimsfaraldri eftir að hafa verið hjá Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi árinu áður.

LESA MEIRA »

Verðlaunahafar á lokahófi

Lokahóf meistaraflokka Gróttu í handknattleik fór fram á föstudagskvöld í Hátíðarsal Gróttu. Að venju voru þeir leikmenn sem sköruðu fram úr í vetur verðlaunaðir.

LESA MEIRA »

Aðalfundir Gróttu 2020

Aðalfundir deilda og ráða Íþróttafélagsins Gróttu fóru fram fimmtudaginn 29. apríl síðastliðinn og að þessu sinni voru fundirnir rafrænir vegna Covid ástandsins. Sigrún Edda Jónsdóttir

LESA MEIRA »

Grótta og Tryggja í samstarf

Íþróttafélagið Grótta og Tryggja í samstarfi við Lloyd´s, bjóða tryggingu fyrir börn yngri en 22 ára í leik og starfi. Tryggingin gildir allan sólarhringinn á æfingum, keppnum og frítíma hvar sem er í heiminum. Þetta er algjörlega valfrjálst fyrir félög/foreldra en fyrir hverja áskrift fær félagið 1.000 kr.

LESA MEIRA »

Lumar þú á ljósmyndum úr sögu Gróttu ?

Íþróttafélagið Grótta er í átaki að leita uppi ljósmyndir úr starfi Gróttu í gegnum tíðina. Við byrjuðum fyrir jól að kynna átakið á Facebook síðu Gróttu og höfum við fengið fjöldan allan af ljósmyndum. Við setjum inn gamlar Gróttumyndir á Facebook síðu okkar í hverri viku.

LESA MEIRA »

Fimleikafjör í dymbilvikunni – FELLUR NIÐUR

ATHUGIÐ – Námskeið heftur verið fellt niður vegna sóttvarnaraðgerða. Vinsamlegast hafið samband við Ólöfu framkvæmdastjóra fimleikadeildar Gróttu varðandi endurgreiðslu á þátttökugjaldi. Tölvupóstfang fimleikadeild@grotta.is og sími

LESA MEIRA »

Jólakveðja Gróttu

Íþróttafélagið Grótta óskar þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum stuðninginn og samfylgdina á árinu sem er að líða.

LESA MEIRA »

Nýtt hugarfarmynd um hugrekki

Hér kemur síðasta myndbandið í röð hugarfarmyndbanda Gróttu sem hófst 19. október síðastliðinn. Jón Halldórsson og Anna Steinsen frá Kvan hafa í síðustu viku fjallað um sjálfstraust, styrkleikana, liðsheild en í þessu myndbandi tekur Anna fyrir hugrekki.

LESA MEIRA »

Nýtt hugarfarmyndband um styrkleika

Í þessu myndbandi fjallar Jón um styrkleikana. Það hefur mikil og jákvæð áhrif á einstaklinga þegar þeir ná því að koma auga á styrkleika sína og átta sig á því hvar styrkleikar þeirra nýtast.

LESA MEIRA »

Nýtt hugarfarmyndband um sjálfstraust

Allir íþróttamenn og konur þurfa á góðu sjálfstrausti að halda. Hvernig fáum við sjálfstraust, hvað gerum við þegar sjálfstraustið minnkar og hvernig getum við hjálpað liðfélögum okkar að auka sjálfstraust.

LESA MEIRA »

Nýtt hugarfarmyndband um liðsheild

Þessi vinsæli liður heldur áfram – við höfum samið við KVAN um að gera 4 myndbönd til viðbótarfyrir samfélagsmiðla Gróttu. Jón Halldórsson og Anna Steinsen frá Kvan munu fjalla um sjálfstraust, hugrekki, styrkleikana og liðsheild í sínum myndböndum.

LESA MEIRA »

Íþróttastarf Gróttu fellur niður til 17. nóvember

Það má með sanni segja að síðustu vikur og mánuðir hafi verið óvenjulegir í starfi Gróttu og auðvitað í heiminum öllum. Íþróttastarf hefur ýmist verið í fullum gangi, í gangi með takmörkunum eða legið alfarið niðri. Nú er það ljóst að allt íþróttastarf mun liggja niðri til 17. nóvember næstkomandi.

LESA MEIRA »

Vellíðan og velgengi – Hugarfarmyndbönd Gróttu

Í þessu myndbandi fjallar Anna Lilja um hvað skiptir máli varðandi vellíðan og velgengi? Æfinguna sem Anna Lilja gerir í myndbandinu er tilvalin fyrir foreldra að gera með krökkunum ykkar og ræða með þeim hvað skiptir máli varðandi vellíðan og velgegni.

LESA MEIRA »

Heimaæfingar Þórs styrktarþjálfara

Þór Sigurðsson, styrktarþjálfari Gróttu, ýtir úr vör heimaæfingamyndböndum í þessari þriðju bylgju Covid. Æfingarnar eru ætlaðar fyrir alla aldurshópa og er tilvalið fyrir foreldra að gera með börnum sínum.

LESA MEIRA »

Yfirlýsing aðalstjórnar Gróttu

Yfirlýsing aðalstjórnar Gróttu Aðalstjórn Gróttu harmar þá ákvörðun almannavarna á höfuðborgarsvæðinu að útiloka börn og ungmenni frá því að geta stundað sína íþrótt með lokun

LESA MEIRA »

Hugarfarmyndbönd Gróttu

Við fengum Önnu Lilju Björnsdóttir til að deila með iðkendum og foreldrum nokkrum hugleiðingum. Um er að ræða þrjú myndbönd, umfjöllun um leiðtoga, liðsfélaga og lífið sjálft sem hægt er að fylgja eftir með verkefnum úr myndböndunum.

LESA MEIRA »

Grótta og COVID

Nú er íþróttastarf hafið að nýju í öllum aldurshópum. Þó með sérstökum formerkjum á það sérstaklega við í boltaíþróttunum tveimur, fótbolta og handbolta.

LESA MEIRA »

Grótta semur við Sportabler

Hér með tilkynnist að Grótta hefur samið við hugbúnaðarfyrirtækið Sportabler um notkun á samskipta- og skipulagshugbúnaði fyrirtækisins. Samningurinn er til þriggja ára.

LESA MEIRA »

Íþróttanámskeið í ágúst

Grótta ætlar líkt og síðustu ár að hafa sumarnámskeið í ágústmánuði. Öll börn eru hvött til að sækja námskeiðin og kynna sér íþróttirnar sem eru í boði í Gróttu. Engin krafa er gerð um reynslu til að taka þátt á námskeiðunum.

LESA MEIRA »

Takk fyrir að vera til fyrirmyndar

Frá því að Covid faraldurinn hófst hafa starfsmenn og þjálfara Gróttu sem og sjálfboðaliðar sem koma að starfi félagsins tekist á við erfiðar áskoranir sem reynt hafa verulega á þolgæði og útsjónarsemi allra þessara aðila.

LESA MEIRA »

Íþrótta- og veislusalir til leigu

Íþróttafélagið Grótta leigir út íþróttasali sína til almennings eftir að dagskrá félagsins er lokið á virkum kvöldum og um helgar. Við bjóðum upp á tvo stórglæsilega sali í leigu þar sem hægt er að halda ýmiss konar mannamót svo sem fermingarveislur, ættarmót, brúðkaupsveislur, stórafmæli og margt fleira.

LESA MEIRA »

Breytingar á lögum Gróttu

Á aðalfundi Gróttu sem fram fer nk. fimmtudag 4. júní kl. 17:00 í hátiðarsal Gróttu liggja fyrir til samþykktar breytingar á lögum félagsins. Hér meðfylgjandi má finna lögin eins og þau líta út eftir breytingar en þau liggja einnig á skrifstofu félagsins til kynningar.

LESA MEIRA »

Nýr styrktarsamningur undirritaður

Nýr 3ja ára samstarfssamningur milli Seltjarnarnesbæjar og Gróttu undirritaður. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og Þröstur Þór Guðmundsson varaformaður Gróttu undirrituðu nýjan samtarfssamning sem lýtur að því markmiði að tryggja öflugt og fjölbreytt íþróttastarf á Seltjarnarnesi. Um er að ræða 3ja ára samning sem gildir til 31. desember 2022.

LESA MEIRA »

Þór Sigurðsson nýr yfirstyrktarþjálfari

Íþróttafélagið Grótta gekk nú í kvöld frá ráðningu Þórs Sigurðssonar í nýtt starf yfirstyrktarþjálfara Gróttu. Þór sem er 42 ára gamall kom til starfa hjá félaginu haustið 2017 og hefur síðan þá þjálfað elstu flokka karla- og kvennamegin í handbolta og fótbolta við afar góðan orðstír.

LESA MEIRA »

Íþróttastarf hefst að nýju

Mánudaginn 4. maí voru merk tímamót að íþróttastarf barna og unglinga hófst að nýju án takmarkana. Íþróttastarf eldri einstaklinga hefst einnig en með nokkrum takmörkunum.

LESA MEIRA »

Upplýsingagjöf vegna samkomubanns

Fljótlega í kjölfar tölvupóstsins sem ég sendi ykkur í gær kom eftirfarandi tilkynning frá ÍSÍ hér. Það er því ljóst að með þessari tilkynningu girða yfirvöld fyrir allt íþróttastarf í landinu á meðan á samkomubanni stendur. Íþróttafélagið Grótta mun að sjálfsögðu fara eftir þessum fyrirmælum yfirvalda og sýna þar með ábyrgð í verki.

LESA MEIRA »

Grótta gerir sitt besta

Á undanförnum vikum hafa starfsmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar hjá Gróttu einbeitt sér að því að takast á við þau verkefni sem fylgt hafa þeim aðgerðum sem grípa hefur þurft til vegna kórónuveirufaraldsins. Flest þessara verka hafa lagst ofan á önnur verkefni sem ávallt þarf að sinna óháð því hvert ástandið í samfélaginu er.

LESA MEIRA »

Farsæl öldrun

Nú rétt í þessu var að ljúka fjölmennum kynningarfundi á verkefninu – Farsæl öldrun. Grótta og félagsstarf eldri bæjarbúa munu taka höndum saman næstu vikurnar

LESA MEIRA »

Íþróttakona Seltjarnarnes

Íris Björk Símonardóttir er íþróttakona Seltjarnaness. Íris Björk er fædd árið 1987 og er uppalin með Gróttu, var markmaður liðsins upp í meistaraflokk og varð Íslands-og bikarmeistari með félaginu 2015 og 2016.

LESA MEIRA »

Fundarbókanir á einum stað

Við höfum ákveðið að velja Teamup fyrir fundabókanir. Breytingin tekur gildi strax. Þeir fundir sem hafa verið bókaðir í gegnum skrifstofuna að undanförnu eru komnir í dagatalið.

LESA MEIRA »

Grótta og Sideline í samstarf

Íþróttafélagið Grótta hefur samið við Sideline Sports um notkun á hugbúnaði fyrirtækisins. Sideline hefur undanfarin ár verið leiðandi á markaði með hugbúnað fyrir íþróttastarf og leikgreiningar.

LESA MEIRA »

Skipulagsbreyting hjá Gróttu

Aðalstjórn Gróttu hefur ákveðið að fara í skipulagsbreytingar á skrifstofu félagsins. Kári Garðarsson sem starfað hefur sem íþróttastjóri Gróttu frá árinu 2015 verður frá og með deginum í dag framkvæmdastjóri félagsins. Kristín Finnbogadóttir sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri Gróttu frá árinu 2001 tekur við nýju starfi fjármálastjóra.

LESA MEIRA »

Viðtal við meistaraflokks þjálfara knattspyrnudeildarinnar

Það er mikið líf á Vivaldivellinum þegar blaðamann Nesfrétta ber að garði á fallegu síðdegi í maí. Örugglega um 60 börn og unglingar að æfa á iðagrænu gervigrasinu. Við höfum mælt okkur mót við þjálfara meistaraflokka Gróttu í knattspyrnu, þá Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason sem þjálfa karlaliðið og Magnús Örn Helgason og Pétur Rögnvaldsson sem þjálfa kvennaliðið.

LESA MEIRA »

Fimleikadeildin flytur í nýjan fimleikasal

Það eru mikil gleðitíðindi sem berast úr herbúðum Gróttu nú um þessar mundir en fimleikadeild félagsins flutti loks búnað sinn inn í nýjan og glæsilegan fimleikasal í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að starfsemi deildarinnar hefjist í nýjum sal á mánudag. Nú eru tvö keppnistímabil að baki þar sem beðið hefur verið eftir þessari glæsilegu aðstöðu sem mun vonandi lyfta starfi deildarinnar í nýjar hæðir.

LESA MEIRA »

Aðalfundir Gróttu 2019

Síðdegis í dag, fimmtudaginn 2. maí fóru fram aðalfundir deilda og ráða Íþróttafélagsins Gróttu. Á fjórða tug mættu á fundina sem gengu vel fyrir sig.

LESA MEIRA »

Ingi húsvörður lætur af störfum

Ágúst Ingi Ágústsson eða Ingi húsvörður lét af störfum í íþróttahúsi Gróttu fyrir rétt rúmrí viku síðan. Ingi hóf störf í íþróttahúsinu 2. janúar 1989 og hafði því starfað samfleytt hjá Seltjarnarnesbæ í tæp 29 ár.

LESA MEIRA »

Á þriðja hundrað iðkenda hlýddu á Pálmar

Í vikunni hafa vel á þriðja hundrað iðkenda allra þriggja deilda Íþróttafélagsins Gróttu hlýtt á fræðsluerindi Pálmars Ragnarssonar. Í fyrirlestri fyrir íþróttaiðkendur fjallar hann á skemmtilegan hátt um samskipti í íþróttum, hvernig við getum verið góðir liðsfélagar, leiðtogar og náð því besta úr öllum í liðinu.

LESA MEIRA »

Þjónustukönnun Gróttu

Þjónustukönnun Íþróttafélagsins Gróttu var gerð dagana 24. maí til 14. júní síðastliðinn. Könnunin var framkvæmd af Capacent fyrir Gróttu.

LESA MEIRA »

Errea og Grótta framlengja samning sinn

Fyrir glæsilegan sigurleik meistaraflokks karla í knattspyrnu á Vestra var samningur Gróttu við Errea framlengdur til næstu fjögurra ára. Þetta þýðir að allir iðkendur fimleika-, handknattleiks- og knattspyrnudeildar klæðast áfram búningum frá Errea næstu árin.

LESA MEIRA »

Bragi Björnsson nýr formaður Gróttu

Síðastliðinn miðvikudag fóru fram aðalfundir allra deilda og aðalstjórnar Gróttu. Á fundi aðalstjórnar urðu formannsskipti en Elín Smáradóttir sem verið hefur formaður félagsins frá árinu 2015 hætti og við keflinu tók Bragi Björnsson.

LESA MEIRA »

Í ljósi #meetoo umræðunnar

Undanfarnar vikur og mánuði hefur farið fram mikil umræðu í tengslum við #meetoo byltinguna á öllum stigum samfélagsins, nú síðast meðal íþróttakvenna. Íþróttafélagið Grótta tekur umræðuna mjög alvarlega enda er ljóst að alltof víða er pottur brotinn í viðhorfi og hegðun gagnvart konum innan íþróttahreyfingarinnar.

LESA MEIRA »

Framkvæmdir hefjast – nýr inngangur að íþróttamiðstöð

Nú eru að hefjast framkvæmdir við stækkun íþróttamiðstöðvar Seltjarnarnesbæjar og er það byggingarfyrirtækið Munck Íslandi ehf. sem er framkvæmdaraðili. Á framkvæmdartíma má búast við einhverju raski á þeirri starfssemi sem fram fer í húsinu. Núverandi inngangi inn í íþróttamiðstöðina hefur verið lokað.

LESA MEIRA »

Sex fengu bronsmerki Gróttu

Á kjöri íþróttamanns Gróttu sl. fimmtudag voru starfsmerki Gróttu afhent. Merkin fá þeir einstaklingar sem unnið hafa ötullega fyrir félagið um árabil. Að þessu sinni fengu sex einstaklingar bronsmerki félagsins.

LESA MEIRA »

Sala á Gróttuvörum flyst í Errea búðina

Frá og með deginum í dag, mánudeginum 25. september mun Gróttubúðin á 2. hæð íþróttahússins sem allflest Gróttufólk þekkir loka. Ákveðið hefur verið að Gróttuföt sem allajafna hafa verið seld hjá Gróttu verði framvegis til sölu í Errea búðinni að Bæjarlind 14-16 í Kópavogi.

LESA MEIRA »

Afmælistreyjur Gróttu til sölu

Í tilefni af 50 ára afmæli Gróttu var ákveðið að meistaraflokkar karla og kvenna í handbolta og fótbolta myndu leika í sérstökum afmælisbúningum á afmælisárinu. Búningarnir eru hvítir og bláir en upprunalegir búningar Gróttu voru einmitt með þeim litum.

LESA MEIRA »

Ljóminn færir Gróttu veglega peningagjöf

Á dögunum færðu nokkrir ungir Gróttumenn félaginu styrk að fjárhæð ein milljón króna. Það var Lífsnautnafélagið Leifur sem færði félaginu þetta fjármagn en hópurinn samanstendur að mestu af drengjum af Seltjarnarnesi sem stunduðu íþróttir í Gróttu á árum áður. Þetta er fjórða árið í röð sem þessi hópur færir Gróttu veglega peningagjöf.

LESA MEIRA »

Nýir afmælisbúningar vígðir

Íþróttafélagið Grótta fagnar 50 ára afmæli sínu um þessar mundir en félagið var stofnað þann 24. apríl árið 1967. Í tilefni af því munu meistaraflokkar karla og kvenna í handbolta og knattspyrnu leika í hvítum afmælisbúningum en fyrstu keppnisbúningar Gróttu voru einmitt hvítir.

LESA MEIRA »

Nýr styrktarsamningur undirritaður

Á dögunum var undirritaður nýr styrktarsamningur Seltjarnarnesbæjar við Íþróttafélagið Gróttu en hann gildir til loka árs 2019. Með nýjum samningi hækka fjárframlög til Gróttu um rúmar 15 milljónir. Meginmarkmið samningsins er að tryggja öflugt og fjölbreytt íþróttastarf á Seltjarnarnesi.

LESA MEIRA »

Aukinn kraftur settur í fræðslu

Síðastliðið mánudagskvöld hélt Dr. Viðar Halldórsson frææðsluerindi fyrir þjálfara allra deilda hjá Gróttu. Erindið fjallaði um mikilvægi þess að styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni. Viðar kynnti um leið verkefnið „Sýnum karakter“ sem er átaksverkefni um þjálfun slíkra þátta.

LESA MEIRA »

Stækkun á íþróttaaðstöðu Gróttu

Þriðjudagurinn 13. desember 2016 mun verða merkilegur dagur í sögu Gróttu þegar fram líða stundir. Ástæðan er sú að þennan dag skrifuðu fulltrúar Seltjarnarnesbæjar og Reykjavíkurborgar undir samkomulag þess efnis að sveitarfélögin munu í sameiningu standa að endurbótum á fimleikaaðstöðu félagsins.

LESA MEIRA »

Grótta tekur við rekstri íþróttamannvirkja

Grótta hefur frá og með 1. september fengið tækifæri til að annast rekstur íþróttamannvirkja sem Seltjarnarnesbær hefur rekið fram til þessa. Reglulega á undanförnum árum hefur Grótta óskað eftir því við Seltjarnarnesbæ að annast rekstur íþróttamannvirkja bæjarins. Það er því gleðistund fyrir Gróttu að bæjaryfirvöld veiti félaginu tæklifæri til rekstrarins.

LESA MEIRA »

Bæjarhátíð Seltjarnarness

Bæjarhátíð Seltjarnarness verður haldin 26.-28. ágúst og mun Grótta líkt og undanfarin ár taka þátt í dagskránni. Dagskrá bæjarhátíðarinnar má finna vef Seltjarnarnessbæjar, www.seltjarnarnes.is

LESA MEIRA »