Skip to content

Errea og Grótta framlengja samning sinn

Fyrir glæsilegan sigurleik meistaraflokks karla í knattspyrnu á Vestra var samningur Gróttu við Errea framlengdur til næstu fjögurra ára. Þetta þýðir að allir iðkendur fimleika-, handknattleiks- og knattspyrnudeildar klæðast áfram búningum frá Errea næstu árin.

Mikil ánægja hefur verið með samstarf Gróttu og Errea en samstarfið hefur staðið frá árinu 2008. Errea hefur verið leiðandi fyrirtæki á Íslandi í búningamálum undanfarin ár og hefur ávallt veitt Gróttu góða þjónustu á undangengnum árum.

Á meðfylgjandi mynd að ofan má sá Þorvald Ólafsson framkvæmdastjóra Errea og Braga Björnsson formann aðalstjórnar Gróttu við undirritun samningsins.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print