Skip to content

Sóley Guðmundsdóttir íþróttamaður æskunnar 2017

Íþróttamaður æskunnar hjá Gróttu var kjörinn í kvöld og varð fimleikakonan Sóley Guðmundsdóttir fyrir valinu.

Sóley Guðmundsdóttir er 14 ára gömul og hefur æft fimleika hjá Gróttu frá fimm ára aldri. Hún er góð fyrirmynd annarra barna. Hún mætir vel á æfingar og leggur sig alla fram, er vinnusöm og dugleg en það hefur skilað henni þeim góða árangri sem hún náð.

Árangur 2017:

  • Þrepamót FSÍ 2017: Sóley sigraði á tvíslá, slá, gólfi og í fjölþraut í 1. þrepi (1. þrep er efsta og erfiðasta þrep Fimleikastigans).
  • Bikarmót FSÍ 2017: Sóley var í bikarliði Gróttu sem að varð bikarmeistari í 1. þrepi.
  • Íslandsmót í þrepum 2017: Sóley varð Íslandsmeistari í 1. þrepi.
  • Íslandsmeistaramót í áhaldafimleikum 2017: Sóley varð í 4. sæti í fjölþraut í unglingaflokki og komst í úrslit á tvíslá, slá og gólfi. Hún varð íslandsmeistari unglinga á slá.
  • Þátttaka á alþjóðlegum mótum 2017: Sóley varð í 7. sæti í fjölþraut í unglingaflokki á Reykjavík International Games. Keppti á Mälarcupen í Svíþjóð og varð í 19. sæti í fjölþraut í unglingaflokki af alls 61 keppanda. Þá var hún6 á meðal efstu keppenda á stökki.
  • Sóley var valin í 11 manna landsliðshóp unglinga í maí fyrir NMJ. Nú í haust var hún valin í 10 manna úrvalshóp unglinga hjá FSÍ. Hópurinn mun æfa saman reglulega í vetur og taka þátt í landsliðsverkefnum á vegum FSÍ.

Sóley byrjaði í vetur að aðstoða við þjálfun þriggja, fjögurra og fimm ára barna hjá fimleikadeildinni og hefur það gengið mjög vel. Hún er mjög jákvæð og skemmtileg stelpa sem kemur með góðan anda inn í fimleikadeildina.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print