Skip to content

VEISLUSALIR TIL LEIGU

Við hjá Íþróttafélaginu Gróttu bjóðum upp á tvo stórglæsilega sali í leigu þar sem hægt er að halda ýmiss konar mannamót svo sem fermingarveislur, ættarmót, brúðkaupsveislur, stórafmæli og margt fleira. Báðir salirnir eru bjartir, rúmgóðir og skemmtilegir auk þess sem staðsetningin er frábær.

Vivaldisalurinn

Veislusalur í vallarhúsi knattspyrnudeildar Gróttu við Vivaldivöllinn. „Salurinn tekur um 50–60 manns í sitjandi veislu en allt að 90 manns í standandi veislu. Gluggarnir í salnum ná frá gólfi og upp í loft, snúa í suðurátt og útsýnið er gott. Salurinn hentar ýmiss konar viðburðum: brúðkaupsveislur, fermingarveislur, afmæli, námskeið og margt fleira.

  • Lítið móttökueldhús
  • Hljóðkerfi fyrir tal og tónlist
  • Stórt sjónvarp
  • Salurinn er leigður út án veitinga
  • Allt að 60 manns í sæti
  • 90 manns í standandi veislu

Hátíðarsalur Gróttu

Rúmgóður og bjartur veislusalur í íþróttahúsi Gróttu. Tekur um 120 manns í sæti og allt að 200 í standandi veislu. Salurinn er afar bjartur með stórum gluggum og hátt er til lofts. Salurinn hentar ýmsum viðburðum svo sem fermingarveislum, brúðkaupum, ættarmótum, afmælum, erfidrykkjum eða fyrir fundi og námskeið.

  • Lítið framreiðslueldhús
  • Hljóðkerfi fyrir tal og tónlist
  • Skjávarpi
  • Salurinn er leigður út án veitinga
  • Barborð í salnum
  • Allt að 120 manns í sæti
  • 200 í standandi veislu

Athugið að leigutakar verða að vera orðnir 20 ára gamlir til að leigja salinn. Veislugestir þurfa einnig almennt að vera orðnir 20 ára gamlir. Íþróttafélagið Grótta áskilur sér rétt til að aflýsa og loka veislum þar sem þessum reglum er ekki fylgt.

Upplýsingar fyrir bókanir gefur Hafdís í gegnum tölvupóst [email protected]

Einnig er hægt að senda inn fyrirspurn með því að fylla út formið neðar á síðunni.

Íþróttafélagið Grótta leigir út tvo íþróttasali sína til almennings eftir að dagskrá félagsins er lokið á virkum kvöldum og um helgar. Salirnir eru frábærir fyrir fótboltahópa en einnig fyrir aðrar íþróttir, s.s. körfubolta, badminton og blak. Nánari upplýsingar um leiguverð og lausa tíma fást á netfanginu [email protected]

VIVALDI SALURINN
VIVALDI SALURINN
VIVALDI SALURINN
VIVALDI SALURINN
HÁTÍÐARSALUR GRÓTTU
VIVALDI SALURINN
HÁTÍÐARSALUR GRÓTTU
VIVALDI SALURINN
HÁTÍÐARSALUR GRÓTTU
VIVALDI SALURINN

HÁTÍÐARSALUR GRÓTTU

VIVALDI SALURINN

Er hann laus?

Salurinn er líklega laus ef sú dagsetning og tími er auður
Salurinn er líklega bókaður ef sú dagsetning og tími er með bláum eða grænum kassa

Veislusalir til leigu

Þú verður að fylla út reiti sem eru merktir með *

Tengiliðarupplýsingar

Nafn*
Netfang*

Bókunarupplýsingar

Salur*
DD slash MM slash YYYY
Frá*
:
Til*
:

FYRIRSPURN