Skip to content

Fimm úr 3. flokki í landsliðsverkefnum

Landsliðsþjálfarar hafa nú valið hóp U16 karla sem tekur þátt æfingamótinu UEFA Development Tournament í Króatíu ásamt úrtakshóp U15 kvenna.

Gróttumennirnir Orri Steinn Óskarsson, Grímur Ingi Jakobsson og Kjartan Kári Halldórsson eru í hópnum sem fer til Króatíu og keppir á æfingamótinu á vegum UEFA. Mótið fer fram 2.-7. apríl og mætir Ísland þar Króatíu, Austurríki og Bólivíu.

Gróttukonurnar Tinna Brá Magnúsdóttir og Rakel Brynjarsdottir eru í úrtakshóp U15 kvenna sem æfir saman 22.-24. mars.

Knattspyrnudeild Gróttu óskar krökkunum innilega til hamingju með þennan árangur.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print

Information

Aðalsími Gróttu 561-1133
Skrifstofa Gróttu opin virka daga
frá kl. 13:00 – 16:00
grotta@grotta.is

Fréttaflokkar