Fullorðinsfimleikar – þrek, styrkur og fjör!

Langar þig að hreyfa þig, styrkja líkamann og prófa eitthvað aðeins öðruvísi?

Fullorðinsfimleikar eru skemmtileg og fjölbreytt hreyfing þar sem við blöndum saman þreki, styrk, stökkum, fimleikaæfingum og góðu fjöri. Æfingarnar henta ólíkri getu og þú þarft engan bakgrunn í fimleikum til að vera með.

Hópurinn hittist tvisvar í viku og lögð er áhersla á góða hreyfingu, skemmtilega stemningu og að allir geti tekið þátt á sínum forsendum.

Í boði eru tvö 14 skipta námskeið fyrir jól og tvö eftir jól.

Komdu og vertu með – það er aldrei of seint að byrja í fimleikum!

Skráning fer fram á Abler: https://www.abler.io/shop/grotta/fimleikar?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NjQyMjc=