Grótta auglýsir eftir húsvörðum í full starf, kvöld og helgarvinnu. Starfið er fjölbreytt en helstu verkefni eru:
- Almenn húsvarsla
- Þjónusta við iðkendur, gesti og félagsmenn Gróttu
- Létt þrif
- Önnur tilfallandi verkefni
Viðkomandi þarf að vera góður í mannlegum samskiptum og gott er að vera handlaginn. Reynsla af húsvarðarstörfum er kostur en þó ekki nauðsyn. Við hvetjum sérstaklega Gróttufólk og Nesbúa til þess að sækja um. Störf sem henta bæði námsfólki sem og þeim sem eru að leita eftir fullu starfi.
Allar umsóknir sendast á framkvæmdarstjóra ([email protected])
#okkargrótta






