Velkomin á vefsíðu Íþróttafélagsins Gróttu

  • Heimilsfang: Íþróttamiðstöðin við Suðurströnd
  • Kennitala: 700371-0779
  • VSK númer: 136022
  • Tölvupóstfang varðandi spurningar: gullijons@grotta.is

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í gegnum grotta.is þar sem þeir innihalda mikilvægar upplýsingar. Með því að nota vefverslun Gróttu samþykkir þú þessa skilmála.

VÖRUR TIL EINKANOTA
Gróttu vörurnar seldar í vefverslun grotta.is/vefverslun til persónulegra nota eingöngu. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum Gróttu án tilskilinna leyfa.

GREIÐSLULEIÐIR
Eftirfarandi greiðsluleiðir og kort er hægt að nota í vefverslun Gróttu.

Kreditkort (örugg greiðsla í gegnum vefþjón Borgunar)
• Visa
• Mastercard
• Amex
• Diners

Debetkort (örugg greiðsla í gegnum vefþjón Borgunar)
• VISA Electron
• Maestro

SKATTAR OG GJÖLD

Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti þar sem við á. Það verð gildir allt kaupferlið og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram.

FERILL PANTANA

Þegar þú hefur lokið við að panta í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Þegar vara er klár til afhendingar berst þér staðfesting þess eðlis. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga þegar skrifstofa Gróttu er opin frá kl. 13:00 – 16:00.

Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið fyrirspurn á gullijons@grotta.is

AFGREIÐSLA PANTANA

Afgreiðsla pantana fer fram í íþróttahúsi Gróttu nema um annað sé samið.

Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða allar pantanir næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

SKILARÉTTUR

Skilafrestur er 14 dagar frá afhendingu vöru. Nauðsynlegt er að varan sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

GÖLLUÐ VARA

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Grótta allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu. Vinsamlegast sendið tölvupóst gullijons@grotta.is varðandi gallaða vöru.

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

ÖRYGGI

Íþróttafélagið Grótta varðveitir ekki kreditkortanúmer sem gefin eru upp við kaup í vefverslun. Þegar komið er að því að gefa upp kortaupplýsingar og ganga frá greiðslu er viðskiptavinur á öruggu vefsvæði Borgunar. Allar greiðslur eru framkvæmdar í vottuðu umhverfi sem uppfyllir PCI DSS öryggisstaðal.

Vefur Gróttu notast við SSL skírteini sem tryggir öryggi í gagnaflutningi og samskiptum. Það tryggir að utanaðkomandi aðilar geta ekki komist inn í upplýsingar og gögn sem streyma frá notendum vefsins.

Lög og varnarþing

Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.

ANNAÐ
Grótta áskilur sér rétt til að fella niður pöntun ef nauðsynlegt reynist undir einhverjum kringumstæðum, það gæti m.a. gerst vegna ranga verðupplýsinga í netverslun eða að vara er ekki lengur fáanleg hjá Gróttu. Viðskiptavinur er upplýstur um slíkt eins fljótt og auðið er.

Skilmálar Íþróttafélagsins Gróttu voru síðast uppfærðir 10. maí 2020.