Happdrætti 3. og 4. flokks – Vinningar

Vinningar úr happdrættinu

Þá erum við búin að draga úr happdrættinu hjá okkur. Hér fyrir neðan er hægt að sjá hvaða miðar voru dregnir.

Við þökkum öllum þeim sem keyptu miða og studdu við bakið á flokkunum 😊

Vinningsmiði Fyrirtæki Vinningur

14 Huppa Gjafabréf í Huppu
19 Klifurhúsið Gjafabréf í Klifurhúsið með leiguskóm
43 Biang Gjafabréf á Biang
46 Huppa Gjafabréf í Huppu
70 Dominos Gjafabréf frá Dominos
72 VAXA Farmbox frá VAXA
74 Skopp Gjafabréf í Skopp (2×60 mín) og Landromat derhúfa
97 Síminn Gjafapoki frá Símanum
98 Mango Gjafabréf í Mango
100 Ó Johnson & Kaaber Kassi af gifflum
103 Pizza 107 Gjafabréf á Pizza 107
108 1 klst í pool eða pílu 1 klst í pool eða pílu
112 Rauða Ljónið Gjafabréf – Fjölskyldutilboð fyrir 4
118 Blómstra ehf. Blómvöndur frá Blómstra
120 Pizza 107 Gjafabréf á Pizza 107
129 Hlýja tannlæknastofa Gum rafmagnstannbursti, tannvörur
149 Bæjarins bezt Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
155 Kostur Gjafapoki með ýmsum vörum frá Kosti
163 Ó Johnson & Kaaber Kassi af gifflum
182 Lyfja Gjafapoki með vítamínum
191 Bioeffect Bioeffect húð- og snyrtivörur
196 Skopp Gjafabréf í Skopp (2×60 mín) og Landromat derhúfa
199 Núna Co. 10 tíma kort frá Núna Co.
216 Veiðikortið Veiðikort
227 Unbroken Gjafabréf frá Unbroken
250 Bæjarapotek Íþróttagjafapoki
255 No1 Kerti Kerti frá no1 kerti
267 Circolo Súkkulaði frá Circolo
272 Eirberg MyTi mini nuddbyssa
274 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
275 Pizza 107 Gjafabréf á Pizza 107
287 Genís Gjafapoki með Benecta fæðubótarefni
297 CCEP Drykkir frá CCEP
303 Lyfja Gjafapoki með vítamínum
311 Ormsson Urbanista Palermo headset frá Despec
317 Blómagallerí Hagamel Ilmkerti frá Blómagellerí Hagamel
319 Ó Johnson & Kaaber Gjafapoki frá Ó Johnson & Kaaber
321 Innnes Caprisun frá Innnes
324 VAXA Farmbox frá VAXA
331 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
370 Hótel Arnarstapi Gisting fyrir tvo á Hótel Arnarstapa m. morgunnverð
376 Björnsbakarí Gjafabréf frá Björnsbakarí – Kaka fyrir 12 manns
377 Nespresso Nespresso Kaffivél
378 Ness (Nesklúbburinn) Gjafabréf á veitingastaðinn Ness (Nesklúbburinn)
384 No.1 kerti Kerti frá no1 kerti
386 GoodGood Gjafakörfur frá GoodGood
387 CCEP Drykkir frá CCEP
390 Elding hvalaskoðun Gjafabréf 2 fullorðnir og 2 börn, Reykjavík eða Akureyri
392 Nexus Gjafabréf í NEXUS
404 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
408 Genís Gjafapoki með Benecta fæðubótarefni
414 Huppa Gjafabréf í Huppu
417 Íþróttabandalag RVK Tvö Gjafabréf í Miðnæturhlaup Suzuki – 10km
420 Hagavagninn Gjafabréf – tvær hamborgaramáltíðir
424 Kaffibrugghúsið 2x Handverkskaffi frá Kaffibrugghúsinu
447 Síminn Gjafapoki frá Símanum
448 Circolo Súkkulaði frá Circolo
456 Sjúkraþjálfun Reykjavíkur Kæliermar fyrir auma liði
461 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
463 Ofar Bose hátalari frá Ofar
493 VAXA Farmbox frá VAXA
510 Fischersund Gjafapoki frá Fischersund
515 Skeljungur Þrifpakki fyrir bílinn frá Skeljungi
527 Olifa Pizzería Gjafabréf frá Olifa Pizzeria
533 Aveeno Gjafapoki með grænu línunni
538 Le Kock Gjafabréf á Le Kock 550 Bæjarins bestu Gjafabréf á Bæjarins Beztu
551 Nespresso Gjafapoki frá Nespresso
559 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
563 VAXA Farmbox frá VAXA
566 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
567 Kuldi Kælihlíf og kælihöfuðband frá Kulda
572 No.1 kerti Kerti frá no1 kerti
573 Ó Johnson & Kaaber Gjafapoki frá Ó Johnson & Kaaber
575 Nesbón Gjafabréf – Alþrif á fólksbíl. Bíll sóttur og skilað
592 VAXA Farmbox frá VAXA
594 Nings Gjafabréf frá Nings
608 Feel Iceland Bone Health Therapy frá Feel Iceland
613 URÐ Gjafaaskja frá Urð
619 ADDA Gjafabréf í fjarþjálfun hjá ÖDDU
629 Calmo Hönnunarkertastjaki
643 Innnes Caprisun frá Innnes
665 Rauða Ljónið Gjafabréf Fjölskyldutilboð fyrir 4
666 GoodGood Gjafakörfur frá GoodGood
677 Snóker & pool 1 klst í pool eða pílu
714 Bus Travel Gjafabréf fyrir 2 í dagsferð með BusTravel
717 Snóker & pool 1 klst í pool eða pílu
724 Nings Gjafabréf frá Nings
738 Rauða Ljónið Gjafabréf – fjölskyldutilboði á Rauða Ljóninu
748 Kaaber heilsa 3 mánaða fjarþjálfun hjá Nönnu Kaaber
762 Hagavagninn Gjafabréf – tvær hamborgaramáltíðir
765 Eirberg Háls- og herðanuddtæki frá Eirberg
769 Hagavagninn Gjafabréf – tvær hamborgaramáltíðir
807 Nings Gjafabréf frá Nings 815 Veiðikortið Veiðikort
821 Pizza 107 Gjafabréf á Pizza 107
823 Bitahöllun 10 skipta klippikort á hádegishlaðborð virka daga
824 Fishersund Gjafapoki frá Fischersund
825 BPro Hárvörur frá BPro
832 Bakarameistarinn Ostaslaufur frá Bakarameisaranum
838 Guli miðinn Glæsilegur vítamín pakki frá Gula Miðanum
844 Mjólkursamsalan Pakki frá Hleðslu
852 Snóker & pool 1 klst í pool eða píla
877 Adreanlíngarðurinn Gjafabréf fyrir tvo í þrautabrautina
897 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
901 Bæjarapótek Íþróttagjafapoki
907 Sportvörur Gjafabréf í Sportvörur
919 Vorulagerinn.is Ferðahleðslubanki fyrir Apple snjalltæki
927 Sigurborg Glæsilegur Sensai gjafakassi
937 Bakarmeistarinn Ostaslaufur frá Bakarameisaranum
938 VAXA Farmbox frá VAXA 953 CCEP Drykkir frá CCEP
958 Hagavagninn Gjafabréf – tvær hamborgaramáltíðir
960 Íþróttabandalag RVK Tvö gjafabréf í Miðnæturhlaup Suzuki – 5km
968 Le Kock Gjafabréf á Le Kock
972 Kostur Gjafapoki með ýmsum vörum frá Kosti
973 Björnsbakarí Gjafabréf frá Björnsbakarí – Kaka fyrir 12 manns
978 Sjúkraþjálfun Reykjavíkur Kæliermar fyrir auma liði
1038 Nings Gjafabréf frá Nings
1056 CCEP Drykkir frá CCEP
1062 Vélar og verkfæri ehf. Cosmic Snyrtispegill GEYSER Steinlitur
1066 Icewear Gjafabréf frá Icewear
1068 Vélar og verkfæri ehf. Bormann lite series þráðlaus borvél
1074 Lindsey Elitess kassi og Thermos vansbrúsi
1080 Nesklúbburinn Gjafabréf í 18 holur fyrir 2 í Nesklúbbnum
1086 Hótel Húsafell Gjafabréf fyrir 2 í Giljaböðin
1087 Kaaber heilsa 3 mánaða fjarþjálfun hjá Nönnu Kaaber
1094 Nuun Sölt og steinefni frá Nuun
1106 R8iant Gjafapoki frá R8iant
1107 CCEP Drykkir frá CCEP
1108 Bus Travel Gjafabréf fyrir 2 í dagsferð með BusTravel
1115 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
1116 GoodGood Gjafakörfur frá GoodGood
1119 Tivoli bistro Gjafabréf frá Tívolí bistro
1122 Jómfrúin Gjafabréf á Jómfrúna
1138 Oche Gjafabréf í Kareoke fyrir allt að 14 manns
1139 Kaaber heilsa 3 mánaða fjarþjálfun hjá Nönnu Kaaber
1140 Snóker&pool 1 klst í pool eða píla
1148 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
1188 Craft Gjafabréf í Craft verslun
1203 Bitahöllin 10 skipta klippikort á hádegishlaðborð virka daga
1207 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
1209 Innnes OREO kex frá Innnes
1217 Svartberg Drykkjarpoki frá Svartberg
1233 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
1237 Visjón Skjágleraugu frá Visjón
1261 VAXA Farmbox frá VAXA
1263 Blue Lagoon Blue Lagoon Skin Science húðvörur
1293 Nesvellir 60 mín gjafabréf í golfhermi Nesklúbbsins
1294 Sportvörur Gjafabréf í Sportvörur
1310 Guli miðinn Glæsilegur vítamín pakki frá Gula Miðanum
1331 IDE HOUSE OF BRANDS Snyrtitaska, unisex
1365 Hreysti Gjafapoki frá Hreysti
1366 Ormsson Urbanista hátalari (vatnsvarinn) frá Ormsson
1369 Rauða ljónið Gjafabréf á Rauða Ljóninu
1376 Huppa Gjafabréf í Huppu
1387 Pizza 107 Gjafabréf á Pizza 107
1395 Nexus Gjafabréf í NEXUS
1396 VAXA Farmbox frá VAXA
1397 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
1398 Nespresso Gjafapoki frá Nespresso
1407 Skeljungur Þrifpakki fyrir bílinn frá Skeljungi
1408 Sjúkraþjálfun Reykjavíkur Kæliermar fyrir auma liði
1423 Umi Yoga studio og snyrtistofa 5 tíma klippikort hjá Umi Yoga studio og snyrtistofa
1425 Nesklúbburinn 60 mín gjafabréf í golfhermi Nesklúbbsins
1428 Nauthóll Gjafabréf – 2 hamborgarar, franskar og gos
1432 Lifetrack Hálfsárskort hjá Lifetrack
1438 CCEP Drykkir frá CCEP
1455 Snóker&pool 1 klst í pool eða píla
1457 Bæjarins bestu Gjafabréf á Bæjarins Beztu
1488 NOLA Gjafabréf í NOLA
1506 IDE HOUSE OF BRANDS Vegleg svunta með leðurvasa
1507 No1 Kerti Kerti frá no1 kerti
1518 Bæjarins bestu Gjafabréf á Bæjarins Beztu
1538 Huppa Gjafabréf í Huppu
1557 Craft Gjafabréf í Craft verslun
1560 Sjúkraþjálfun Reykjavíkur Kæliermar fyrir auma liði
1569 Svartberg Starttæki frá Svartberg
1577 NOLA Gjafabréf í NOLA
1587 NOLA Gjafabréf í NOLA
1592 NEXUS Gjafabréf í NEXUS
1595 Djúpið Gjafabréf frá Djúpinu
1601 Bitahöllin 10 skipta klippikort á hádegishlaðborð virka daga
1602 Núna Co. 10 tíma kort frá Núna Co.
1603 Mjólkursamsalan Hleðsla frá MS
1604 Innnes Caprisun frá Innnes
1606 Mjólkursamsalan Hleðsla frá MS
1608 Sportvörur Gjafabréf í Sportvörur
1616 Vélar og verkfæri ehf. Stayer skrúfvél í tösku (PBL122B)
1632 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
1641 Urbanista headset  Urbanista Valencia headset frá Despec
1642 Kuldi Kælihlíf og kælihöfuðband
1653 Genís Gjafapoki með Benecta fæðubótarefni
1655 Ó Johnson & Kaaber Kassi af gifflum
1656 Vörulagerinn Openear Forte þráðlaus heyrnatól
1662 Skeljungur Þrifpakki fyrir bílinn frá Skeljungi
1673 VAXA Farmbox frá VAXA
1735 Pizza 107 Gjafabréf á Pizza 107
1738 Innnes Caprisun frá Innnes
1774 IDE HOUSE OF BRANDS Fallegt fjölnota kaffimál
1777 Bæjarins bestu Gjafabréf frá Bæjarins Beztu
1782 Ormsson Xqisit heyrnartól
1784 Oche Gjafabréf í pílu fyrir tvo
1788 Lifetrack Hálfsárskort hjá Lifetrack
1791 Kjötkompaní Gjafabréf frá Kjötkompaní
1793 Djúpið Gjafabréf frá Djúpinu
1803 Ísbúðin Háaleiti Gjafabréf í Ísbúðina Háaleiti
1815 VAXA Farmbox frá VAXA
1826 Nuun Sölt og steinefni frá Nuun
1837 Ó Johnson & Kaaber Gjafapoki frá Ó Johnson & Kaaber
1854 Blue Lagoon Skin Science Blue Lagoon Skin Science ilmkerti
1857 Djúpið Gjafabréf frá Djúpinu
1860 ABC skólavörur Gjafapoki frá ABC skólavörum
1865 Unbroken Gjafabréf frá Unbroken
1867 Dominos Gjafabréf frá Dominos
1877 As we grow Gjafabréf frá As We Grow

Happdrætti 3. og 4.flokks

Leikmenn yngri flokka Gróttu hafa staðið í ströngu í vetur við að fjárafla fyrir ferðum sínum utan landsteinanna. Núna er komið að happdrætti þar sem fjölmargir glæsilegir vinningar eru í boði. Heildarverðmæti vinninga er rúmlega 1.500.000 kr. Hér að neðan má sjá vinningaskránna.

Einn miði kostar 2.500 kr og þrír miðar kosta 6.000 kr.

Hægt er að kaupa hjá leikmönnum en einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected] og kaupa miða þannig.

Eingöngu verður dregið úr seldum miðum.

Áfram Grótta!

VINNINGASKRÁ

Grótta/KR Íslandsmeistarar

Strákarnir á eldra ári í 6.flokki karla urðu Íslandsmeistarar nú á dögunum. Þeir urðu einnig bikarmeistarar fyrr í vetur.

Strákarnir unnu öll mót vetrarins og fóru í gegnum veturinn taplausir

Þjálfari flokksins er Hannes Grimm og honum til aðstoðar eru Bessi Teitsson, Gísli Örn Alfreðsson, Kristján Ólafur Gíslason og Oliver Örtenblad Bergmann.

Á myndina vantar Gunnar Egil Davíðsson en hann var með strákunum á facetime í verðlaunaafhendingunni eins og sjá má á myndinni.

Framtíðin er svo sannalega björt!

83% fjölgun iðkenda í barna- og unglingastarfi handboltans í Gróttu

Undanfarin sex ár hefur barna- og unglingaráð (BUR) handboltans í Gróttu lagt í markvissa vinnu við að efla og bæta starf sitt – og árangurinn er skýr. Fjöldi iðkenda í yngri flokkum (4–19 ára) hefur nær tvöfaldast, úr 219 árið 2020 í 400 árið 2026, aukning um 83% á sex árum. Þetta þýðir að 39% ungmenna (4-19 ára) á Seltjarnarnesi æfir handbolta. Þjálfarahópurinn telur 41, þar af er 40 þeirra uppalið Gróttufólk. Yfirþjálfarar eru tveir, báðir uppaldir innan félagsins.*

Handbolti hefur alltaf skipað stóran sess í lífi bæjarins. Við byggjum því á mjög góðum grunni og hefð innan bæjarfélagsins um handboltaiðkun. Í dag berum við einnig ábyrgð á handboltaiðkun barna- og unglinga í Vesturbænum. Þar höldum við úti starfi undir nafni KR fyrir iðkendur á aldrinum 6-9 ára en sameinumst undir fána Gróttu við 10 ára aldur.

Að baki vextinum standa skýr markmið og markvissar aðgerðir barna- og unglingaráðs:

  • Tryggja að starfið sé skipulagt og faglegt.
  • Hafa ánægða þjálfara, iðkendur og foreldra.
  • Fjölga iðkendum og gefa öllum jöfn tækifæri.
  • Fræða og efla þjálfara og iðkendur í leik og starfi.
  • Byggja starfið á Gróttufólki.
  • Bjóða upp á besta barna- og unglingastarf á landinu.

Okkar leiðarljós hefur alltaf verið að það eiga öll að geta æft handbolta í Gróttu, óháð getustigi eða félagslegri stöðu. Við viljum að öllum iðkendum og þjálfurum líði vel og fái tækifæri til að þroskast og ná framförum við hæfi. 

Með skýrri stefnu og aðgengilegu starfi höfum við gefið fleiri börnum tækifæri til að stunda handbolta og sinnum þannig hlutverki okkar sem öflug forvörn í uppeldi barna, um leið og við stuðlum að vexti félagsins.

Við hlökkum til að halda áfram að fjölga iðkendum í handboltanum og stuðla að frekari vexti deildarinnar.

Barna- og unglingaráð Gróttu í handbolta

*Tölur: Grótta, Abler og Hagstofa Íslands.

Ída Margrét er íþróttakona Gróttu 2025

Árlegt kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2025 fór fram á þriðjudagskvöld. Handknattleiksfólk var fyrirferðamikið á hátíðinni og meðal annars í kjöri á íþróttakonu Gróttu. Ída Margrét Stefánsdóttir var tilnefnd frá handboltanum og Lovísa Davíðsdóttir Scheving frá knattspyrnudeild. Það var síðan Ída sem hlaut titilinn íþróttakona Gróttu.

Ída Margrét er fædd árið 2002 og er rétthent skytta. Ída Margrét hóf handknattleiksiðkun sína ung að árum og kemur úr mikilli handboltafjölskyldu. Hún kom fyrst til Gróttu á láni árið 2021. Hún staldraði þó stutt við það tímabilið þar sem hún var fljótlega kölluð til baka til Vals. Frá árinu 2022 hefur hún verið lykilleikmaður Gróttuliðsins og myndar í dag fyrirliðateymi liðsins með Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur. Ída hefur leikið 85 leiki með Gróttu.

Gróttuliðið lék í Olísdeildinni meðal bestu liða landsins á seinasta leiktímabili. Liðið féll eftir hetjulega baráttu. Grótta komst alla leið í Final4 í bikarkeppninni og mætti þar stjörnuprýddu liði Hauka. Haukakonur voru sterkari og uppskáru að lokum bikarmeistaratitilinn.

Ída er stórskytta og var markahæsti leikmaður liðsins á seinasta tímabili í Olísdeildinni. Hún hefur haldið uppteknum hætti í vetur og er langmarkahæsti leikmaður Gróttu hingað til með 7 mörk að meðaltali í hverjum leik. Auk þess er hún frábær varnarleikmaður og fyrirmynd.

Á lokahófi handknattleiksdeildar Gróttu í vor þá var Ída Margrét valin mikilvægasti leikmaður liðsins.

Ída er mikil keppnismanneskja og leggur sig ávallt alla fram í öll verkefni, tekur leiðsögn vel og getur náð enn lengra á næstu árum. Það er virkilega gleðileg tíðindi fyrir jólin að hún ákvað að framlengja samninginn sinn við Gróttu til ársins 2029.

Myndir: Eyjólfur Garðarsson

Antoine Óskar er íþróttamaður Gróttu 2025

Árlegt kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2025 fór fram í gærkvöldi. Handknattleiksfólk var fyrirferðamikið á hátíðinni og meðal annars í kjöri á íþróttamanni Gróttu. Antoine Óskar Pantano var tilnefndur frá handboltanum og Grímur Ingi Jakobsson frá knattspyrnudeild. Antoine hlaut nafnbótina íþróttamaður Gróttu árið 2025.

Antoine Óskar er fæddur árið 2006 og er að leika á sínu fjórða leiktímabili með Gróttu þrátt fyrir ungan aldur. Grótta lék fyrri hluta ársins í Olísdeildinni á meðal bestu liða landsins en liðið þurfti að bíta í það súra epli að falla niður í næstefstu deild, Grill 66-deildina eftir spennandi fallbaráttu.

Hann er mikill leiðtogi sem lýsir sér best að hann er annar af tveimur fyrirliðum meistaraflokks karla. Hann hefur skoraði 85 mörk fyrir Gróttu í vetur og leikur lykilhlutverk í varnarleik liðsins.

Antoine lét sér það ekki nægja að leika með meistaraflokki á seinasta leiktímabili því hann lék með 3.flokki karla sem gerði sér lítið fyrir og varð bikarmeistari í mars og endaði í 2.sæti Íslandsmótsins eftir framlengdan úrslitaleik. Antoine var lykilleikmaður liðsins, fyrirliði og með hæfileikum sínum gerði hann alla leikmenn í kringum sig betri.

Antoine hefur verið fastamaður í unglingalandsliðum Íslands og verið þar fyrirliði. Vegna meiðsla sem hann glímdi við á seinasta leiktímabili gat hann ekki tekið þátt í landsliðsverkefnum síðastliðið sumar. Þar stóð hæst HM í Egyptalandi í ágúst.

Antoine Óskar hefur undanfarin þrjú árin verið þjálfari yngri flokka hjá félaginu og af honum fer virkilega góður orðstír. Hann hefur verið í forgrunni fyrir mikla uppbyggingu og fjölgun í vesturbæjarstarfi yngstu flokka félagsins. Samhliða því hefur hann verið aðstoðarþjálfari hjá eldri flokkum og nú í vetur annar af þjálfurum 5.flokks karla. Hann miðlar sinni þekkingu, reynslu og leiðtogahæfileikum til yngri iðkenda félagsins.

Myndir: Eyjólfur Garðarsson

Strákarnir bikarmeistarar

Strákarnir í 6.flokki karla eldri mættu Víkingi í úrslitaleik Powerade bikarsins núna í hádeginu. Eftir jafnar fyrst mínútur leiksins voru það okkar drengir sem höfðu þriggja marka forskot í hálfleik, 9-6.

Í síðari hálfleik voru okkar strákar áfram flottir og sigldu frábærum 19-14 sigri í hús. Með þessum sigri urðu strákarnir bikarmeistarar í fyrsta skipti en þeir eru ríkjandi Íslandsmeistarar.

Liðsheild strákanna var frábær í leiknum og spennustig leikmanna rétt stillt hjá þjálfarateyminu.

36 drengir æfa í 6.flokki og tefla þeir fram 5 liðum í Íslandsmótinu. Þjálfarar flokksins eru Hannes Grimm, Bessi Teitsson, Gísli Örn Alfreðsson, Kristján Ólafur Gíslason og Oliver Ørtenblad Bergmann.

Við óskum strákunum og þjálfurum til hamingju með sigurinn. Framtíðin er björt !

Grótta í bikarúrslitum

Um helgina fara fram bikarúrslit í öllum keppnisflokkum HSÍ. Við í Gróttu eigum eitt lið í úrslitum en það eru 6.flokkur karla eldri.

Allir úrslitaleikirnir fara fram við glæsilega umgjörð að Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikur Gróttu fer fram á sunnudaginn kl. 12:30.

6.flokkur karla eldri
Grótta – Víkingur
Sunnudaginn 1.mars
kl. 12:30

Við hvetjum allt Gróttufólk til að fjölmenna á Ásvelli á sunnudaginn og hvetja okkar upprennandi leikmenn til dáða.

Áfram Grótta !

Handboltaskóli Gróttu/KR í vetrarleyfinu

Vetrarleyfi og skipulagsdagar grunnskólanna eru á næsta leiti. Í tilefni af því bjóðum við upp á handboltaskóla fyrir alla krakka í 1. – 6.bekk eða þá krakka sem eru fædd 2014-2019. Skólinn fer fram í Hertz-höllinni.

Hver dagur kostar 3700 kr og fer skráningin fram í Abler. Beinn hlekkur á skráninguna er hérna: https://www.abler.io/shop/grotta/handbolti/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTMzODM=/

Þjálfarar á námskeiðinu eru þjálfarar yngri flokkanna og leikmenn meistaraflokks.

Boltaskóli Gróttu heldur áfram

!!VORÖNN!! Nú verður einnig hægt að skrá börn sem eru fædd snemma árið 2023😁

Knattspyrnu og handknattleiksdeildir Gróttu halda áfram með Boltaskóla fyrir börn fædd 2022 á sunnudögum kl. 09:15.

Vorönn byrjar 4. janúar og skráning er hafin, líkt og seinast er notast við klippikortakerfi. https://www.abler.io/shop/grotta/fotbolti?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NDY0NDg=

Skemmtilegt námskeið þar sem að við leggjum áherslu á að foreldri/forráðamaður og barn njóti gæðastundar saman í tímanum þar sem unnið er með leik og hreyfingu með bolta og önnur áhöld.

Námskeiðið er sett upp þannig að einn forráðamaður mætir með barninu í tímann og er með barninu í leik og starfi.

Hlökkum til að sjá ykkur!
Hansína og Arndís María