Mikið úrval skemmtilegra námskeiða í boði og fjöldatakmörk eru á flestum þeirra, því gott að hafa hraðar hendur. Svipað snið er á námskeiðunum og síðustu ár en m.a. verður aftur boðið uppá smíðavöll, vegna mikillar eftirspurnar.
*ATH. Skráning fyrir smíðavöll opnar seinna. Smíðavöllurinn er sömu vikur og survivor-námskeiðið.
Sumarnámskeið Gróttu eru í undirbúningi. Námskeiðin verða með hefðbundnu sniði þar sem boðið verður uppá námskeið á vegum deilda félagsins, handbolta, fótbolta og fimleika.
Námskeiðin sjálf, fyrirkomulag og skráning verður auglýst fljótlega.
Í dymbilvikunni verður boðið upp á Handboltaskóla Gróttu/KR. Skólinn fer fram í Hertz-höllinni kl. 09:00-12:00 og er fyrir krakka í 1. – 6.bekk (f. 2018-2013). Skipt verður upp í hópa eftir aldri.
Ofurhetjumót Fimleikadeildar Gróttu og Colgate 2025, fór fram síðustu helgi, þar sem alls 330 ofurhetjur frá fjórum félögum sýndu glæsilega takta í fimleikum, allt frá 6. þrepi upp í frjálst þrep, Íslenska fimleikastigans. Keppt var frá föstudegi til sunnudagskvöld og óhætt að segja að mikil gleði og líf ríkti í Hertzhöllinni.
Mótið tókst ótrúlega vel og það var frábært að sjá keppendur njóta sín í litríkri og ævintýralegri umgjörð mótsins. Fimleikadeild Gróttu vill þakka öllum keppendum og foreldrum kærlega fyrir komuna. Sérstakar þakkir fá einnig allir þjálfarar, dómarar og sjálfboðaliðar sem lögðu hönd á plóg við uppsetningu og framkvæmd mótsins.
Að lokum viljum við þakka styrktaraðila Ofurhetjumótsins, Colgate innilega fyrir stuðninginn, en allir keppendur fóru heim með glæsilega þátttökugjöf frá þeim.
Kjör Íþróttafólks Gróttu var haldið þriðjudaginn 11. mars við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Gróttu. Viðburðurinn er fastur liður ár hvert þar sem veittar eru viðurkenningar fyrir árangur og framlag einstaklinga innan félagsins.
Helstu viðurkenningar
Kristófer Melsted knattspyrnumaður var kjörinn Íþróttamaður Gróttu og Katrín Anna Ásmundsdóttir handknattleikskona var kjörin Íþróttakona Gróttu.
Hrafn Ingi Jóhannsson handknattleiksmaður var valinn Íþróttamaður æskunnar og Rebekka Sif Brynjarsdóttir knattspyrnukona var kjörin Íþróttakona æskunnar.
Tomas Bekkavik fimleikaþjálfari var valinn þjálfari ársins.
Sjálfboðaliðar ársins Sjálfboðaliðar gegna lykilhlutverki í íþróttafélögum með ómetanlegu framlagi sínu þar sem þeir gefa tíma sinn og krafta til að skapa öflugt íþróttaumhverfi. Við kunnum sjálfboðaliðum miklar þakkir fyrir óeigingjarnt starf sitt sem gerir fjölbreytta íþróttastarfsemi mögulega og styrkir samheldni innan félagsins. Sjálfboðaliðar ársins 2024 eru Aron Bjarki Arnarsson hjá handknattleiksdeild og Lilja Nótt Þórarinsdóttir hjá knattspyrnudeild.
Viðurkenningar til þeirra sem kepptu fyrir íslandshönd í fyrsta sinn á árinu
Þrír íþróttamenn hlutu viðurkenningu fyrir að hafa keppt fyrir Íslandshönd í fyrsta sinn á árinu 2024 en það voru þau Atli Steinn Arnarsson, Anna Karólína Ingadóttir og Bessi Teitsson
Silfurmerki Gróttu hlutu: Anna Björg Erlingsdóttir og Jórunn María Þorsteinsdóttir.
Gullmerki Gróttu hlaut: Andri Sigfússon.
Að kjöri loknu var boðið upp á léttar veitingar fyrir gesti. Eyjólfur Garðarsson var viðstaddur og festi viðburðinn á filmu en hann hefur um árabil sinnt ómetanlegu starfi fyrir Gróttu með því að mynda mikilvæga viðburði innan félagsins.
Grótta óskar öllum viðtakendum til hamingju og þakkar þeim kærlega sem láta gott af sér leiða innan félagsins.
Ofurhetjumót Fimleikadeildar Gróttu og Colgate, fer fram um helgina, þar sem alls 300 ofurhetjur frá fjórum félögum sýna listir sínar í fimleikum. Keppt verður í 6. þrepi, bæði hjá stúlkum og drengjum, auk keppni í fimmta, fjórða og þriðja þrepi stúlkna. Undirbúningur fyrir mótið er á fullum og mikil tilhlökkun ríkir innan Gróttu. Fylgjast má með mótinu á Instagram-síðu fimleikadeildar Gróttu @grottafimleikar og á Facebook-síðu deildarinnar, Grótta Fimleikar.
Við óskar öllum keppendum góðs gengis á mótinu og hlökkum til að taka á móti gestum í Hertz- höllina um helgina.
Kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2024 fer fram við hátíðlega athöfn þriðjudaginn 11. mars kl. 17:30 í hátíðarsal Gróttu.
Auk þess verða krýnd: *Íþróttakona æskunnar. *Íþróttamaður æskunnar. *Þjálfari ársins. *Sjálfboðaliðar ársins. *Þau sem kepptu í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd á árinu. *Afhent verða brons-, silfur- og gullmerki Gróttu.
Við hvetjum allt Gróttufólk til að mæta og heiðra okkar flotta íþróttafólk. Það verða léttar veitingar í boði að kjöri loknu.
Aðalfundir aðalstjórnar og deilda Íþróttafélagsins Gróttu fara fram fimmtudaginn 27. mars 2025. Aðalfundirnir hefjast kl. 17:30 og er gert ráð fyrir að þeim sé lokið kl. 18:30. Eftir að aðalfundunum lýkur verður öllum gestum boðið upp á léttar veitingar.
Helgina 7-9 febrúar fór fram GK-mót yngri í Gerplu, þar sem Grótta tók þátt með fjögur lið: eitt lið í 4. flokki, tvö lið í stökkfimi 4. flokks og eitt lið í keppnisflokki KKY.
Grótta náði góðum árangri í stökkfimi þar sem annað liðið hafnaði í 1. sæti og hitt í 9. sæti. Liðið í 4. flokki endaði í 8. sæti, í A- deild og keppnisflokkur KKY hafnaði í 5. sæti.
Fimleikadeild Gróttu er stolt af árangri sinna keppenda og óskar þeim innilega til hamingju með frammistöðuna og hlakkar til að fylgjast með yngri flokkum deildarinnar í hópfimleikum.
Þrepamót í 1.-3. þrepi íslenska fimleikastigans fór fram helgina 15.-16. febrúar í Keflavík. Fimleikadeild Gróttu átti fjölmennan og glæsilegan hóp keppenda, sem sýndi frábæra frammistöðu á fyrsta móti vorannar. Keppendur stóðu sig með prýði og náðu miklum árangri.
Í 2. þrepi stúlkna, 13 ára og eldri, keppti Hildur Monika Baldvinsdóttir á sínu fyrsta móti í 2. þrepi. Hún sýndi nýjar æfingar á slá og gólfi með góðum árangri.
Í 3. þrepi stúlkna 11 ára og yngri náði Mjöll Jónsdóttir tilsettum stigafjölda í fjölþraut til að ná þrepinu. Mjöll sigraði einnig í tvíslá og hlaut gullverðlaun, og Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir náði bronsi í gólfæfingum í sama flokki.
Í 3. þrepi stúlkna 12 ára, fékk Hugrún Anna Guðnadóttir bronsverðlaun í stökki.
Í 3. þrepi stúlkna 13 ára og eldri, fékk Hrefna Höskuldsdóttir Rafnar gull á stökki og Sunna Mist Sheehan hlaut gull á tvíslá.
Fimleikadeild Gróttu óskar keppendum sínum og þjálfurum innilega til hamingju með árangurinn og hlakkar til að fylgjast með frekari frammistöðu á komandi mótum.