Íþróttafélagið Grótta auglýsir eftir húsvörðum

Grótta auglýsir eftir húsvörðum í full starf, kvöld og helgarvinnu. Starfið er fjölbreytt en helstu verkefni eru:

  • Almenn húsvarsla
  • Þjónusta við iðkendur, gesti og félagsmenn Gróttu
  • Létt þrif
  • Önnur tilfallandi verkefni

Viðkomandi þarf að vera góður í mannlegum samskiptum og gott er að vera handlaginn. Reynsla af húsvarðarstörfum er kostur en þó ekki nauðsyn. Við hvetjum sérstaklega Gróttufólk og Nesbúa til þess að sækja um. Störf sem henta bæði námsfólki sem og þeim sem eru að leita eftir fullu starfi.

Allar umsóknir sendast á framkvæmdarstjóra ([email protected])

#okkargrótta

Grótta Open Golfmót

Þann 30. ágúst næstkomandi munum við halda golfmót til styrktar félagsins, Grótta Open. Leikið verður á Nesvellinum og ræst út af öllum teigum kl. 09:00.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sæti í punktakeppni og höggleik, sem og við munum útkljá hvaða deild Gróttu er best í golfi. Nándarverðlaun á öllum par þrjú holum, frábærir vinningar í boði.

Miðaverð er 10.000 kr, hamborgari og bjór/gos innifalinn í verðinu. Hægt er að skrá sig gegnum golfbox.com hér, skráning hefst 10. ágúst og stendur til 29.

Breytingar á skrifstofu

Frá áramótum hafa verið gerðar ýmsar breytingar á skrifstofu félagsins.

Í janúar tók Erlendur Guðmundsson við sem íþrótta- og verkefnastjóri, en hann byrjaði sem verkefnastjóri sumarnámskeiða sumarið 2025 og var síðan í hlutastarfi fram að áramótum. Erlendur, sem er nýútskrifaður Íþróttafræðingur, tekur við umsjón með öllum íþróttamálum ásamt því sinna viðburðarhaldi í samvinnu við deildir og sjálfboðaliða Gróttu. Erlendur er Valsari að upplagi, en leikur í dag handbolta fyrir Fram í Úlfarsárdal.

Síðastliðinn maí hóf síðan nýr fjármálastjóri störf hjá félaginu, Tómas Sigurðsson. Ekki hefur verið eiginlegur fjármálastjóri Gróttu um einhverja stund en við bindum miklar vonir við að Tómas komi sterkur inn í starf félagsins. Tómas er með meistaragráðu í fjármálaverkfræði og var síðast fjármálastjóri Klettabæjar, áður en hann kom til okkar. Hann er uppalinn hér á Nesinu, flutti síðan í Garðabæinn og ætti því ekki að koma á óvart að hann er fremur lunkinn golfari.

Þá hefur Rakel Lóa Brynjarsdóttir látið af störfum sem samfélagsmiðlastjóri félagsins en hún tók við því hlutverki fyrr á þessu ári. Rakel Lóa mun þó áfram hjálpa meistaraflokk kvenna í sinni baráttu um sæti í Bestu deild kvenna, þær sitja um þessar mundir í efsta sæti Lengjudeildarinnar þegar sex leikir eru eftir. Við þökkum henni innilega fyrir sitt framlag og óskum henni velfarnaðar í öðrum hlutverkum sem hún gengur í innan félagsins.

Við erum þá komin með þriggja manna teymi á skrifstofunni, Erlendur og Tómas ásamt Fríðu framkvæmdarstjóra. Vonir standa til að félagsmenn fari að sjá raunverulegar breytingar á rekstri og virkni skrifstofunnar næstu mánuði.

#okkargrotta

Tómas, Fríða og Erlendur
Tómas, Fríða og Erlendur

Grótta gerir sitt besta

Á undanförnum vikum hafa starfsmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar hjá Gróttu einbeitt sér að því að takast á við þau verkefni sem fylgt hafa þeim aðgerðum sem grípa hefur þurft til vegna kórónuveirufaraldsins. Flest þessara verka hafa lagst ofan á önnur verkefni sem ávallt þarf að sinna óháð því hvert ástandið í samfélaginu er.

Continue reading