Strákarnir á eldra ári í 6.flokki karla urðu Íslandsmeistarar nú á dögunum. Þeir urðu einnig bikarmeistarar fyrr í vetur.
Strákarnir unnu öll mót vetrarins og fóru í gegnum veturinn taplausir
Þjálfari flokksins er Hannes Grimm og honum til aðstoðar eru Bessi Teitsson, Gísli Örn Alfreðsson, Kristján Ólafur Gíslason og Oliver Örtenblad Bergmann.
Á myndina vantar Gunnar Egil Davíðsson en hann var með strákunum á facetime í verðlaunaafhendingunni eins og sjá má á myndinni.
Um helgina fór fram Íslandsmeistaramót í áhaldafimleikum og Grótta átti þar fimm keppendur.
Eldey Erla Hauksdóttir keppti í frjálsum æfingum. Sunneva Eyþórsdóttir, Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir og Elsa Finnsdóttir kepptu í 3. þrepi og Sigríður Lára Indriðadóttir í 2. þrepi.
Eldey Erla keppti á gólfi og slá og stóð sig frábærlega.
Sigríður Lára keppti í 2. þrepi og átti frábæran dag og hafnaði í 5. sæti í fjölþraut. Sunneva átti líka góðan keppnisdag og náði 3. sæti í fjölþraut í flokki 12 ára. Elsa og Sigurrós kepptu í flokki 11 ára og yngri og stigu báðar á pall. Elsa hafnaði í 2. sæti og Sigurrós stóð uppi sem Íslandsmeistari í sínum flokki.
Við óskum iðkendum og þjálfurum innilega til hamingju með frábæran árangur!
Kjör íþróttafólks Gróttu 2025 fór fram síðastliðinn 3.mars. Þar voru veitt verðlaun og viðurkenningar fyrir íþróttafólk, starfsfólk og sjálfboðaliða félagsins.
Frábær mæting var á viðburðinn þar sem Gróttufólk kom saman til að fagna og veita viðurkenningar fyrir framlag til félagsins.
Þjálfari ársins er Vala Thoroddsen.
Íþróttakona Gróttu er Ída Margrét Stefánsdóttir.
Íþróttamaður Gróttu er Antoine Óskar Pantano.
Íþróttakona æskunnar er Kristín Fríða Scheving.
Íþróttamaður æskunnar er Björgvin Brimi Andrésson.
Íþróttafólk sem keppti í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd árið 2025
Hannes Pétur Hauksson, U20 ára landslið karla í handbolta. Æfingaleikur gegn A-landsliði Grænlands
Soffía Helen Sölvadóttir, U15 landslið kvenna í handbolta. Æfingaleikir gegn Færeyjum
Sylvía Sigrún Eðvarðsdóttir, U15 landslið kvenna í handbolta. Æfingaleikir gegn Færeyjum
Kristján Tómas Björnsson, U16 landslið karla í fótbolta, Æfingamót í Finnlandi
Harpa Hlíf Bárðardóttir fékk gull heiðursmerki Gróttu
Harpa frímannsdóttir fékk silfur heiðursmerki Gróttu.
Sjálfboðaliðar ársins hjá handknattleiksdeild eru Bernódus Sveinsson og Kristín Björg Svövudóttir.
Sjálfboðaliði ársins hjá knattspyrnudeild er Sigmundur Einar Másson.
Sjálfboðaliði ársins hjá fimleikadeild er Anna Kristín Kristinsdóttir.
Árlegt kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2025 fór fram á þriðjudagskvöld. Handknattleiksfólk var fyrirferðamikið á hátíðinni og meðal annars í kjöri á íþróttakonu Gróttu. Ída Margrét Stefánsdóttir var tilnefnd frá handboltanum og Lovísa Davíðsdóttir Scheving frá knattspyrnudeild. Það var síðan Ída sem hlaut titilinn íþróttakona Gróttu.
Ída Margrét er fædd árið 2002 og er rétthent skytta. Ída Margrét hóf handknattleiksiðkun sína ung að árum og kemur úr mikilli handboltafjölskyldu. Hún kom fyrst til Gróttu á láni árið 2021. Hún staldraði þó stutt við það tímabilið þar sem hún var fljótlega kölluð til baka til Vals. Frá árinu 2022 hefur hún verið lykilleikmaður Gróttuliðsins og myndar í dag fyrirliðateymi liðsins með Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur. Ída hefur leikið 85 leiki með Gróttu.
Gróttuliðið lék í Olísdeildinni meðal bestu liða landsins á seinasta leiktímabili. Liðið féll eftir hetjulega baráttu. Grótta komst alla leið í Final4 í bikarkeppninni og mætti þar stjörnuprýddu liði Hauka. Haukakonur voru sterkari og uppskáru að lokum bikarmeistaratitilinn.
Ída er stórskytta og var markahæsti leikmaður liðsins á seinasta tímabili í Olísdeildinni. Hún hefur haldið uppteknum hætti í vetur og er langmarkahæsti leikmaður Gróttu hingað til með 7 mörk að meðaltali í hverjum leik. Auk þess er hún frábær varnarleikmaður og fyrirmynd.
Á lokahófi handknattleiksdeildar Gróttu í vor þá var Ída Margrét valin mikilvægasti leikmaður liðsins.
Ída er mikil keppnismanneskja og leggur sig ávallt alla fram í öll verkefni, tekur leiðsögn vel og getur náð enn lengra á næstu árum. Það er virkilega gleðileg tíðindi fyrir jólin að hún ákvað að framlengja samninginn sinn við Gróttu til ársins 2029.
Árlegt kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2025 fór fram í gærkvöldi. Handknattleiksfólk var fyrirferðamikið á hátíðinni og meðal annars í kjöri á íþróttamanni Gróttu. Antoine Óskar Pantano var tilnefndur frá handboltanum og Grímur Ingi Jakobsson frá knattspyrnudeild. Antoine hlaut nafnbótina íþróttamaður Gróttu árið 2025.
Antoine Óskar er fæddur árið 2006 og er að leika á sínu fjórða leiktímabili með Gróttu þrátt fyrir ungan aldur. Grótta lék fyrri hluta ársins í Olísdeildinni á meðal bestu liða landsins en liðið þurfti að bíta í það súra epli að falla niður í næstefstu deild, Grill 66-deildina eftir spennandi fallbaráttu.
Hann er mikill leiðtogi sem lýsir sér best að hann er annar af tveimur fyrirliðum meistaraflokks karla. Hann hefur skoraði 85 mörk fyrir Gróttu í vetur og leikur lykilhlutverk í varnarleik liðsins.
Antoine lét sér það ekki nægja að leika með meistaraflokki á seinasta leiktímabili því hann lék með 3.flokki karla sem gerði sér lítið fyrir og varð bikarmeistari í mars og endaði í 2.sæti Íslandsmótsins eftir framlengdan úrslitaleik. Antoine var lykilleikmaður liðsins, fyrirliði og með hæfileikum sínum gerði hann alla leikmenn í kringum sig betri.
Antoine hefur verið fastamaður í unglingalandsliðum Íslands og verið þar fyrirliði. Vegna meiðsla sem hann glímdi við á seinasta leiktímabili gat hann ekki tekið þátt í landsliðsverkefnum síðastliðið sumar. Þar stóð hæst HM í Egyptalandi í ágúst.
Antoine Óskar hefur undanfarin þrjú árin verið þjálfari yngri flokka hjá félaginu og af honum fer virkilega góður orðstír. Hann hefur verið í forgrunni fyrir mikla uppbyggingu og fjölgun í vesturbæjarstarfi yngstu flokka félagsins. Samhliða því hefur hann verið aðstoðarþjálfari hjá eldri flokkum og nú í vetur annar af þjálfurum 5.flokks karla. Hann miðlar sinni þekkingu, reynslu og leiðtogahæfileikum til yngri iðkenda félagsins.
Um helgina fór fram Bikarmót 2025 í áhalda- og hópfimleikum, þar sem fremsta fimleikafólk landsins keppti um titlana. Mótið var haldið af Fjölni í Egilshöll, og óhætt er að segja að sannkölluð fimleikaveisla átti sér stað. Grótta sendi sex lið til keppni ásamt tveimur gestum í frjálsu þrepi og 2. þrepi fimleikastigans. Liðin stóðu sig með prýði.
Í 3. þrepi A-deild tryggði lið Gróttu sér titil bikarmeistara með frábæra útkomu, 223.196 stig. Liðið skipuðu Mjöll Jónsdóttir, Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir, Þuríður Katrín Kistinsdóttir, Fanney Petrea L. Arnórsdóttir, Sigríður Lára Indriðadóttir og Sunna Mist Sheehen. Það er einnig vert að nefna að Grótta var með yngsta liðið í keppninni, og óskum við þeim innilega til hamingju með stórkostlegan árangur.
Í 3. þrepi B-deild hafnaði lið Gróttu í 2. sæti, og óskum við stelpunum innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Liðið skipuðu Guðrún Jakóbína Eiríksdóttir, Margrét Helga Geirsdóttir, Magnea Margrét Þorsteinsdóttir, Hrefna Höskuldsdóttir Rafnar, Sigurlaug Margrét Pétursdóttir og Mirra Kjartansdóttir.
Hópfimleikadeild Gróttu sendi fjögur lið til keppni, og sýndu liðin miklar framfarir. Lið 3. flokks í A-deild hafnaði í 4. sæti, og verður gaman að fylgjast með þeim á Íslandsmeistaramótinu í hópfimleikum, sem fram fer á Akranesi 10.–13. apríl. Óhætt er að segja að framtíðin sé björt í fimleikadeild Gróttu.
Laugardaginn 14.maí fór fram lokahóf meistaraflokka Gróttu í handbolta. Þar komu leikmenn, þjálfarar, stjórn og sjálfboðaliðar og fögnuðu góðu tímabili.Á lokahófinu voru þeir leikmenn verðlaunaðir sem þóttu skara fram úr í vetur.
Því næst voru leikmenn heiðraðir sem höfðu leikið 50 leiki fyrir Gróttu. Það voru þau:
Anna Katrín Stefánsdóttir Ari Pétur Eiríksson Hrafnhildur Hekla Grímsdóttir Jakob Ingi Stefánsson Katrín Anna Ásmundsdóttir Valgerður Helga Ísaksdóttir
Þeir leikmenn sem voru verðlaunaðir fyrir 100 leiki fyrir Gróttu voru:
Guðrún Þorláksdóttir Soffía Steingrímsdóttir
________________________
Að lokum var þjálfarateymi meistaraflokks kvenna þakkað fyrir sín störf undanfarin ár; Davíð Örn Hlöðversson og Kári Garðarsson.
Við óskum þessum verðlaunahöfum til hamingju og hlökkum til að sjá þá og liðin okkar aftur í haust í Olísdeildinni, Grill 66-deildinni og 2.deild karla.
Við fórum þá leið í ár að framleiða myndbönd um verðlaunahafa í stað þess að hafa athöfn.
Við boðuðum tilnefnda og vinningshafa í myndatöku hjá Eyjólfi Garðarssyni fimmtudaginn 6 janúar og myndbands upptökur með siguvegurum fóru fram fyrstu helgina eftir undir styrkri stjórn Fjalars Sigurðarsonar.
Eftirtaldir aðilar lögðu fram krafta sína í myndbands gerðina og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Þulur: Lilja Nótt Þórarinsdóttir Hljóðsetning: Jói B/Audioland.is Klipping: Ástrós Lind Grafík: Elsa Nielsen Ljósmyndir: Eyjólfur Garðarsson Handknattleiksefni: Kári Garðarsson og Arnar Daði Arnarsson Fimleikaefni: Fimleikasamband Íslands Ýmsar reddingar: Lilja Nótt Þórarinsdóttir Framleiðendur: Gunnlaugur Jónsson & Fjalar Sigurðarson
Eyjólfur ljósmyndari var mættur laugardaginn 8 janúar þegar upptökur fóru fram á myndbandinu og fangaði stemmninguna.
Fjalar Sigurðarsson við upptökurNanna Guðmundsdóttir íþróttakona Gróttu 2021Kjartan Kári íþróttamaður æskunnarVerðlaunagripirnirArnar Daði þjálfari ársinsPétur Theodór íþróttamaður Gróttu árið 2021
Nanna Guðmundsdóttir er íþróttakona Gróttu árið 2021. Úr umsögn Fimleikadeildar um Nönnu. Nanna Guðmundsdóttir er í hópi fremstu áhaldafimleikakvenna landsins og hefur lagt mikið á sig til komast á þann stað sem hún er á í dag. Nanna varð Íslandsmeistari í fjölþraut á Íslandsmótinu sem var haldið í mars. Þetta var hennar fyrsti Íslandsmeistaratitilll í fjölþraut í kvennaflokki. Nanna var valin í úrvalshóp kvenna hjá FSÍ árið 2021. Nanna var í landsliði Íslands á Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem var haldið í Sviss dagana 21. – 25. apríl. Nanna var með besta árangur Íslenskra landsliðsins í fjölþraut og hæstu stig sem íslensk fimleikakona fékk á árinu. Hún fékk samtals 47,032 stig sem að eru hæstu stig sem hún hefur fengið í fjölþraut. Hennar besti árangur var á gólfi þar sem hún varð í 40. sæti af 91 keppanda.
Hún var í landsliði Íslands á Heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum sem var haldið í Japan dagana 18. – 24. október. Hún var efst íslenskra kvenna á einstökum áhöldum, en hún skoraði 12.000 stig á gólfi og fékk hrós frá yfirdómara á gólfi fyrir „perfect artistry“. Hún varð í 39. sæti af alls 82 keppendum.
Við fórum þá leið í ár að framleiða myndbönd um verðlaunahafa í stað þess að hafa athöfn. Sérstakar þakkir fá Fjalar Sigurðarson, Lilja Nótt Þórarinsdóttir og Jói B (Audioland.is) fyrir óeigingjarnt framlag til myndbandagerðarinnar.