Mikil fagnaðarlæti brutust út á Vivaldivellinum í kvöld þegar meistaraflokkur karla sigraði Vestra 3-2 í toppslag 2. deildar!
Grótta er nú með jafn mörg stig og Afturelding, og situr í 1-2. sæti með Mosfellingum, með 33 stig.
Leikurinn í kvöld var æsispennandi, en staðan var 1-2 fyrir Vestra í hálfleik. Arnar Þór skoraði fyrir Gróttu í fyrri hálfleik og Pétur Theódór jafnaði metin fyrir Gróttu á 57’ mínútu.
Pétur skoraði síðan sitt annað mark á 89’ mínútu og tryggði Gróttu mikilvægan sigur!
Þessar skemmtilegu myndir tók Eyjólfur Garðarsson