Hin 19 ára gamla Elfa Mjöll Jónsdóttir skrifaði í vikunni undir samning við Gróttu en hún kemur til félagsins frá Völsungi. Þrátt fyrir ungan aldur á Elfa 64 leiki að baki með Húsvíkingum en hún er kraftmikill hægri kantmaður. Elfa kom inná í 3-2 sigri Gróttu á Augnablik á föstudaginn og stóð sig vel.
Þá hefur Emma Steinsen snúið aftur í Gróttu á láni frá Val en hún var fyrri hluta sumars í herbúðum Fylkis. Emma lék 17 leiki með Gróttu í fyrra og þekkir því til á Nesinu. Emma kom einnig inná sem varamaður í leiknum á föstudaginn en hún getur leikið allar stöður í öftustu línu.
Magnús Örn Helgason, annar þjálfara Gróttu fagnar Elfu og Emmu á Nesið.
„Það er frábært að Elfa hafi valið að koma til okkar í Gróttu. Það sterkt fyrir félagið að tryggja sér jafn öflugan leikmann út tímabilið 2023 og við hlökkum mikið til að vinna með henni á næstu misserum. Þá erum við glöð að fá Emmu aftur í félagið. Hún er skemmtilegur karakter og öflugur varnarmaður sem mun hjálpa liðinu mikið. Við þökkum Völsungi og Val fyrir góð samskipti í tengslum við félagaskiptin.“