Hér kemur síðasta myndbandið í röð hugarfarmyndbanda Gróttu sem hófst 19. október síðastliðinn. Jón Halldórsson og Anna Steinsen frá Kvan hafa í síðustu viku fjallað um sjálfstraust, styrkleikana, liðsheild en í þessu myndbandi tekur Anna fyrir hugrekki.
Hugrekki er einn af þessum þáttum sem að góður íþróttamaður/kona þarf að búa yfir. Hafa hugrekki til þess að segja sína skoðun, hugrekki til þess að þora að skjóta á markið, hugrekki til þess að segja hvernig manni líður og síðast en ekki síst hugrekki til þess að þora gera mistök.
Hér er hægt að finna öll hugarfarmyndbönd Gróttu: grotta.is/hugarfarmyndbond