Laugardag 19.sept síðastliðinn voru þjálfarar yngri flokka hjá handknatteiksdeild Gróttu með þjálfaraæfingu þar sem farið var í pælingar fyrir veturinn.
Við erum ótrúlega stolt af okkar þjálfarateymi og er þetta partur af því að búa til góðan æfingabanka í Gróttu ásamt því að auðvelda ungum þjálfurum að ganga til liðs við þjálfarateymi Gróttu.
Með okkur í þetta verkefni fengum við nokkra iðkendur úr 5.flokk og var farið í um 20 æfingar, þau stóðu sig með glæsibrag.
Það styttist í fyrstu mót vetrarinns hjá yngri flokkunum sem hefst helgina 2-4.okt:
- 5.fl kvenna (eldra árið) fer til Vestmanneyja
- 6.flokkarnir fara norður á Akureyri
- 7.fl kvk fer í Grafarvoginn til Fjölnis
- 7.fl kk fer til Hauka í Hafnafjörðinn