Tinna Brá, leikmaður 3. flokks, hefur verið valin á úrtaksæfingar U17 dagana 8.-10. febrúar. Vakin er athygli á því að Tinna var á úrtaksæfingum U16 síðustu helgi en hún verður 15 ára í sumar.
Gríðarlega efnilegur markmaður hér á ferð og augljóst að framtíð kvennaboltans er björt með Tinnu Brá milli stanganna!
![](https://b1752376.smushcdn.com/1752376/wp-content/uploads/2019/02/Knattspyrnudeild_grotta_Frettir_leikmenn_51.jpg?lossy=1&strip=1&webp=1)