3.flokkur í draumaferð

3.flokkur karla fór í draumaferð til Þýskalands um miðjan júnímánuð. Strákarnir dvöldu fyrstu fjóra dagana í Gummersbach þar sem þeir æfðu með og léku æfingaleik við heimamenn. Sameiginlegu æfingarnar voru með U17 og U19 ára akademíuliðum Gummersbach. Æfingaleikurinn var gegn U17 ára liðinu og fór hann með fjögurra marka sigri heimamanna, 29-33.

Seinustu þrír dagar ferðarinnar voru í Köln þar sem Final 4 í meistaradeildinni fór fram í glæsilegri Lanxess-íþróttahöllinni. Þar sáu strákarnir hverja stórstjörnuna á fætur annarri og að lokum Barcelona með Viktor Gísla Hallgrímsson innanborðs verða Evrópumeistara eftir frábæra leiki.

Ferðin mun án efa skilja eftir ótal minningar enda vel heppnuð ferð hjá strákunum.

Grótta/KR Íslandsmeistarar

Strákarnir á eldra ári í 6.flokki karla urðu Íslandsmeistarar nú á dögunum. Þeir urðu einnig bikarmeistarar fyrr í vetur.

Strákarnir unnu öll mót vetrarins og fóru í gegnum veturinn taplausir

Þjálfari flokksins er Hannes Grimm og honum til aðstoðar eru Bessi Teitsson, Gísli Örn Alfreðsson, Kristján Ólafur Gíslason og Oliver Örtenblad Bergmann.

Á myndina vantar Gunnar Egil Davíðsson en hann var með strákunum á facetime í verðlaunaafhendingunni eins og sjá má á myndinni.

Framtíðin er svo sannalega björt!

83% fjölgun iðkenda í barna- og unglingastarfi handboltans í Gróttu

Undanfarin sex ár hefur barna- og unglingaráð (BUR) handboltans í Gróttu lagt í markvissa vinnu við að efla og bæta starf sitt – og árangurinn er skýr. Fjöldi iðkenda í yngri flokkum (4–19 ára) hefur nær tvöfaldast, úr 219 árið 2020 í 400 árið 2026, aukning um 83% á sex árum. Þetta þýðir að 39% ungmenna (4-19 ára) á Seltjarnarnesi æfir handbolta. Þjálfarahópurinn telur 41, þar af er 40 þeirra uppalið Gróttufólk. Yfirþjálfarar eru tveir, báðir uppaldir innan félagsins.*

Handbolti hefur alltaf skipað stóran sess í lífi bæjarins. Við byggjum því á mjög góðum grunni og hefð innan bæjarfélagsins um handboltaiðkun. Í dag berum við einnig ábyrgð á handboltaiðkun barna- og unglinga í Vesturbænum. Þar höldum við úti starfi undir nafni KR fyrir iðkendur á aldrinum 6-9 ára en sameinumst undir fána Gróttu við 10 ára aldur.

Að baki vextinum standa skýr markmið og markvissar aðgerðir barna- og unglingaráðs:

  • Tryggja að starfið sé skipulagt og faglegt.
  • Hafa ánægða þjálfara, iðkendur og foreldra.
  • Fjölga iðkendum og gefa öllum jöfn tækifæri.
  • Fræða og efla þjálfara og iðkendur í leik og starfi.
  • Byggja starfið á Gróttufólki.
  • Bjóða upp á besta barna- og unglingastarf á landinu.

Okkar leiðarljós hefur alltaf verið að það eiga öll að geta æft handbolta í Gróttu, óháð getustigi eða félagslegri stöðu. Við viljum að öllum iðkendum og þjálfurum líði vel og fái tækifæri til að þroskast og ná framförum við hæfi. 

Með skýrri stefnu og aðgengilegu starfi höfum við gefið fleiri börnum tækifæri til að stunda handbolta og sinnum þannig hlutverki okkar sem öflug forvörn í uppeldi barna, um leið og við stuðlum að vexti félagsins.

Við hlökkum til að halda áfram að fjölga iðkendum í handboltanum og stuðla að frekari vexti deildarinnar.

Barna- og unglingaráð Gróttu í handbolta

*Tölur: Grótta, Abler og Hagstofa Íslands.

Leiðbeinendur á sumarnámskeiðum Gróttu

Grótta auglýsir eftir einstaklingum 18 ára og eldri til að starfa sem leiðbeinendur á sumarnámskeiðum félagsins sumarið 2026

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Umsækjendur skulu vera 18 ára og eldri (fædd 2008 og eldri).
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð fyrirmynd og heilbrigður lífsstíll.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Gaman að vinna með börnum
  • Hreint sakavottorð.

Endilega sóttu um! https://alfred.is/en/starf/leidbeinendur-a-sumarnamskeidum-grottu-6

✨ FJÖLSKYLDUFJÖR SUMARDAGINN FYRSTA! ✨

Fimleikadeild Gróttu býður ykkur velkomin á fjölskyldufjör sumardaginn fyrsta! 🥳

Frjáls leikur í salnum fyrir börn og foreldra 🤸‍♀️ Greitt er fyrir hvert barn og fullorðnir fylgja með. Gjaldið er 1500 kr. per barn. Hægt er að skrá sig á milli kl. 10-11 eða kl. 11-12.

Skráning fer fram í gegnum abler eða á staðnum. Þá verður ýmislegt annað skemmtilegt í boði:

• Andlitsmálning 🎨

• Litir og blöð ✏️

• Popp og candyfloss til sölu 🍿🍭

Komið og njótið yndislegrar stundar saman – fullt af gleði, leik og góðri stemningu! https://www.abler.io/shop/grotta/fimleikar?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTYzODY=

Kjör íþróttafólks Gróttu 2025

Kjör íþróttafólks Gróttu 2025 fór fram síðastliðinn 3.mars. Þar voru veitt verðlaun og viðurkenningar fyrir íþróttafólk, starfsfólk og sjálfboðaliða félagsins.

Frábær mæting var á viðburðinn þar sem Gróttufólk kom saman til að fagna og veita viðurkenningar fyrir framlag til félagsins. 

Þjálfari ársins er Vala Thoroddsen.

Íþróttakona Gróttu er Ída Margrét Stefánsdóttir.

Íþróttamaður Gróttu er Antoine Óskar Pantano.

Íþróttakona æskunnar er Kristín Fríða Scheving.

Íþróttamaður æskunnar er Björgvin Brimi Andrésson.

Íþróttafólk sem keppti í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd árið 2025 

Hannes Pétur Hauksson, U20 ára landslið karla í handbolta. Æfingaleikur gegn A-landsliði  Grænlands

Soffía Helen Sölvadóttir, U15 landslið kvenna í handbolta. Æfingaleikir gegn Færeyjum

Sylvía Sigrún Eðvarðsdóttir, U15 landslið kvenna í handbolta. Æfingaleikir gegn Færeyjum

Kristján Tómas Björnsson, U16 landslið karla í fótbolta, Æfingamót í Finnlandi

Harpa Hlíf Bárðardóttir fékk gull heiðursmerki Gróttu

Harpa frímannsdóttir fékk silfur heiðursmerki Gróttu.

Sjálfboðaliðar ársins hjá handknattleiksdeild eru Bernódus Sveinsson og Kristín Björg Svövudóttir.

Sjálfboðaliði ársins hjá knattspyrnudeild er Sigmundur Einar Másson.

Sjálfboðaliði ársins hjá fimleikadeild er Anna Kristín Kristinsdóttir.

Myndir eftir Eyjólfur Garðarsson

Ída Margrét er íþróttakona Gróttu 2025

Árlegt kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2025 fór fram á þriðjudagskvöld. Handknattleiksfólk var fyrirferðamikið á hátíðinni og meðal annars í kjöri á íþróttakonu Gróttu. Ída Margrét Stefánsdóttir var tilnefnd frá handboltanum og Lovísa Davíðsdóttir Scheving frá knattspyrnudeild. Það var síðan Ída sem hlaut titilinn íþróttakona Gróttu.

Ída Margrét er fædd árið 2002 og er rétthent skytta. Ída Margrét hóf handknattleiksiðkun sína ung að árum og kemur úr mikilli handboltafjölskyldu. Hún kom fyrst til Gróttu á láni árið 2021. Hún staldraði þó stutt við það tímabilið þar sem hún var fljótlega kölluð til baka til Vals. Frá árinu 2022 hefur hún verið lykilleikmaður Gróttuliðsins og myndar í dag fyrirliðateymi liðsins með Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur. Ída hefur leikið 85 leiki með Gróttu.

Gróttuliðið lék í Olísdeildinni meðal bestu liða landsins á seinasta leiktímabili. Liðið féll eftir hetjulega baráttu. Grótta komst alla leið í Final4 í bikarkeppninni og mætti þar stjörnuprýddu liði Hauka. Haukakonur voru sterkari og uppskáru að lokum bikarmeistaratitilinn.

Ída er stórskytta og var markahæsti leikmaður liðsins á seinasta tímabili í Olísdeildinni. Hún hefur haldið uppteknum hætti í vetur og er langmarkahæsti leikmaður Gróttu hingað til með 7 mörk að meðaltali í hverjum leik. Auk þess er hún frábær varnarleikmaður og fyrirmynd.

Á lokahófi handknattleiksdeildar Gróttu í vor þá var Ída Margrét valin mikilvægasti leikmaður liðsins.

Ída er mikil keppnismanneskja og leggur sig ávallt alla fram í öll verkefni, tekur leiðsögn vel og getur náð enn lengra á næstu árum. Það er virkilega gleðileg tíðindi fyrir jólin að hún ákvað að framlengja samninginn sinn við Gróttu til ársins 2029.

Myndir: Eyjólfur Garðarsson