Antoine Óskar Pantano hefur skrifað undir nýjan samning við Handknattleiksdeild Gróttu sem gildir út tímabilið 2026. Antoine er 17 ára gamall leikstjórnandi og hefur heldur betur stimplað sig inn í Olísdeildina í vetur með góðri frammistöðu. Hann hefur skorað 11 mörk og skapað 22 marktækifæri fyrir liðsfélaga sína í þeim 9 leikjum sem búnir eru.
Antoine Óskar er lykilleikmaður í U18 ára landsliði karla en liðið endaði endaði í 5.sæti á Opna Evrópumótinu í Svíþjóð og 5.sæti á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Slóveníu síðastliðið sumar.
Það eru miklar gleðifréttir að Antoine leiki í Gróttutreyjunni næstu árin enda framtíðarleikmaður meistaraflokks.
Ari Pétur Eiríksson hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2026. Ara Pétur þarf vart að kynna fyrir Gróttufólk enda hefur hann leikið 90 leiki fyrir félagið. Hann er 21 árs gamall og leikur sem hægri skytta. Ari Pétur hefur skorað 17 mörk sem af er Olísdeildarinnar. Þess fyrir utan er hann með 28 sköpuð færi fyrir liðsfélaga sína.
Ari Pétur hefur leikið með flestum yngri landsliðum Íslands. Það eru gleðifréttir að Ari Pétur verði áfram í herbúðum Gróttu. Miklar vonir eru bundnar við þennan uppalda Gróttumann og verður spennandi sjá hann næstu misserin.
Íþróttafélagið Grótta auglýsir til umsóknar starf framkvæmdastjóra félagsins. Leitað er eftir einstaklingi sem er kraftmikill leiðtogi sem fer fyrir hópi öflugra starfsmanna og vinnur að uppbyggingu Gróttu í takti við framtíðarsýn félagsins. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og eru mikil tækifæri fyrir nýjan aðila að hafa mótandi áhrif á félagið.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri Gróttu sem og fjármálum og rekstri mannvirkja um heyra undir Aðalstjórn félagsins. Innan Gróttu starfa þrjár deildir; Fimleikadeild, Handknattleiksdeild og Knattspyrnudeild, með um 1000 iðkendur og tugi þjálfara.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2023. Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast og því hvetjum við umsækjendur til að sækja um sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Ábyrgð á allri starfsemi félagsins, mannauðsmálum, rekstri deilda og fjármálum
· Stefnumótun og eftirfylgni hennar, markmiðasetning og ferla- og umbótarvinna
· Rekstraráætlanagerð og tekjuöflun í samstarfi við stjórnir, auk markaðssetning félagins
· Ábyrgð á innri og ytri upplýsingagjöf í samræmi við stefnu Gróttu og í samvinnu við deildir
· Umsjón með markaðssetningu Gróttu og stærri viðburðum félagsins
· Ber ábyrgð á starfsmannahaldi félagsins og skipuleggur verkefni og verksvið
· Stuðlar að því að efla félagsandann og vinnur að uppbyggingu félagsins
· Ber ábyrgð á samningum félagsins og vinnur með deildum í samningagerð þeirra
· Sér til þess að rekstur félagsins, mannvirkja og skrifstofu sé hagkvæmur og árangursríkur
· Stuðningur við stjórnir deilda og sjálfboðaliða félagsins
· Rekstur og viðhald mannvirkja og aðstaða félagsins
· Leiðir samskipti við sérsambönd og opinbera aðila
· Umsjón aðalstjórnarfunda ásamt eftirfylgni með ákvörðunum funda
· Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
· Mikil hæfni í samskiptum og sterk leiðtoga- og skipulagshæfni
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Hefur góða innsýn í og reynslu af stjórnun, rekstri og fjármálum
· Frumkvæði, áræðni og jákvætt viðhorf
· Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
· Reynsla og þekking á íþróttastarfsemi og rekstri innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2023. Sótt er um starfið á umsóknarvef Alfreðs: Íþróttafélagið Grótta (alfred.is) Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda tölvupóst á grotta@grotta.is
Fyrir jólin árið 2011 ákvað knattspyrnudeild Gróttu að gefa út blað þar sem farið var yfir árið hjá deildinni í máli og myndum. Á þeim tímapunkti óraði líklega engan fyrir því að árið 2022 myndi tólfta blaðið koma út!
Jórunn María Þorsteinsdóttir Bachmann ritstýrði jólablaðinu í ár. Í blaðinu má finna skemmtileg viðtöl, ýmsar fréttir og fróðleik. Í blaðinu er m.a. að finna viðtöl við Jón Jónsson, Emelíu Óskarsdóttur, Kjartan Kára Halldórsson, Magnús Örn Helgason og Huldu Mýrdal. Þá eru yngri iðkendur einnig teknir tali og loks má ekki gleyma þeim fjölmörgu myndum sem prýða blaðið en Eyjólfur Garðarsson á heiðurinn af þeim. Elsa Nielsen sá um uppsetningu blaðsins sem er hið glæsilegasta.
Dreifing hefur gengið vel þökk sé sjálfboðaliðum og ætti Gróttublaðið nú að vera komið í öll hús á Seltjarnarnesi.
Vefútgáfu blaðsins má finna hér: https://issuu.com/nielsenslf/docs/grottublad-2022-web
Knattspyrnudeild Gróttu óskar Gróttufólki gleðilegra jóla og þakkar kærlega fyrir stuðninginn á liðnu ári 💙
Kjartan Kári Halldórsson er í úrvalsliðið Lengjudeildarinnar 2022 og var einnig valinn efnilegasti leikmaður ársins. Kjartan hefur skorað 15 mörk í 18 leikjum í Lengjudeildinni í ár og staðið sig gríðarlega vel með sínu uppeldisfélagi. Grótta á einnig tvo fulltrúa á varamannabekk úrvalsliðsins en það eru þeir Jón Ívan Rivine og Arnar Þór Helgason. Knattspyrnudeild Gróttu óskar Kjartani innilega til hamingju með þennan glæsta árangur!
Óliver Degi var veittur blómvöndur fyrir leik Gróttu og Kórdrengja þann 2. september sl. í tilefni þess að hann hefur spilað 100 leiki fyrir Gróttu. Óliver kom til félagsins frá KR árið 2018 og hefur verið lykilleikmaður í liðinu síðan. Knattspyrnudeild Gróttu óskar Óliver innilega til hamingju með þennan merka áfanga.
Handknattleiksdeild Gróttu hefur hafið sölu á árskortum vetrarins Boðið er upp á fimm mismunandi gerðir af árskortum sem henta fjölbreyttum hópi áhorfenda.
Gullkort Gullkortið gildir fyrir tvo á alla deildarleiki Gróttu í Hertz-höllinni í vetur hjá báðum meistaraflokkunum okkar. Kortið kostar 40.000 kr.
Silfurkort Silfurkortið gildir fyrir einn á alla deildarleiki Gróttu í Hertz-höllinni í vetur hjá báðum meistaraflokkunum okkar. Kortið kostar 25.000 kr.
Olísdeildarkort Olísdeildarkortið gildir fyrir einn á alla deildarleiki meistaraflokks karla í Hertz-höllinni í vetur. Kortið kostar 15.000 kr.
Grill 66-deildarkort Grill 66-deildarkortið gildir fyrir einn á alla deildarleiki meistaraflokks kvenna í Hertz-höllinni í vetur. Kortið kostar 10.000 kr.
Ungmennakort (16 – 20 ára) Ungmennakortið gildir fyrir einn á alla deildarleiki Gróttu í Hertz-höllinni í vetur hjá báðum meistaraflokkunum okkar. Kortið kostar 7000 kr.
Fyrsta umferð Olísdeildar karla fer fram í kvöld en þá mæta okkar menn ÍR í Hertz-höllinni á Nesinu. Leikurinn hefst kl. 19:30. Við hvetjum Seltirninga og annað Gróttufólk að mæta og styðja liðið frá upphafi.