Pétur Rögnvaldsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu og kemur því inn í þjálfarateymið með Magnúsi Erni Helgasyni og Þór Sigurðssyni styrktarþjálfara.
Pétur hefur þjálfað hjá knattspyrnudeildinni frá árinu 2015 og er nú þjálfari 3. flokks kvenna hjá Gróttu/KR. Hann mun sinna því starfi áfram meðfram meistaraflokksþjálfuninni. Pétur er að klára UEFA-B þjálfaragráðu og mun í febrúar útskrifast með gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Magnús Örn þjálfari hafði þetta um málið að segja:
„Það er mjög ánægjulegt að fá Pétur inn í þjálfarateymið. Hann er að mínu áliti mjög frambærilegur þjálfari og tel ég að við munum bæta hvorn annan upp í starfinu. Pétur er mikill Gróttumaður og hefur ástríðu fyrir verkefninu.“
![](https://b1752376.smushcdn.com/1752376/wp-content/uploads/2019/01/Knattspyrnudeild_grotta_Frettir_mflkvk-7.jpg?lossy=1&strip=1&webp=1)