Hornamaðurinn Helga Guðrún Sigurðardóttir hefur framlengt samning sinn við Gróttu um 2 ár.
Helga sem er 20 ára gömul og uppalin hjá félaginu spilaði á síðastliðnu keppnistímabili 15 leiki og skoraði í þeim 12 mörk í Gróttu-liðinu sem endaði í 4.sæti Grill-66 deildarinnar þegar tímabilinu var aflýst.
Það er mikil ánægja að samningar hafi náðst við uppaldann leikmann hjá félaginu og hlökkum við mikið til að fylgjast með Helgu á komandi keppnistímabili!
Áfram Grótta!