Laugardaginn 21. nóvember bauð handknattleiksdeild Gróttu sínum iðkendum upp á laugardagsæfingu sem heppnuðust frábærlega. Mikil gleði ríkti á æfingum og var gaman að sjá hvað mikill eldmóður er í okkar flottu krökkum.
Æfingarnar eru fyrir 8.fl kk og kvk upp í 5.fl kk og kvk.
Tímasetningar eru eftirfarandi:
- Kl. 9:00 – 10:00 6.flokkur karla og kvenna
- Kl 10:00 – 11:00 7.flokkur karla og kvenna
- Kl 11:00 – 12:00 8.flokkur karla og kvenna
- Kl 12:00 – 13:30 5.flokkur karla og kvenna
Við minnum á að næsta laugardag, 28. nóvember verður það sama upp á teningnum.