Gróttustrákar úr 7. flokki karla skemmtu sér konunglega á hinu víðfræga Norðurálsmóti sem var haldið á Akranesi helgina 17-19. júní. Grótta fór með sex lið á mótið og stóðu drengirnir sig gríðarlega vel, innan sem utan vallar! 8. flokkur karla og kvenna léku einnig á mótinu, en haldið var 8. flokks mót á Skaganum þann 16. júní. Úr 8. flokki Gróttu mættu sex lið til leiks, fjögur strákalið og tvö stelpulið, og skemmtu krakkarnir sér auðvitað mjög vel.
Myndir: Eyjólfur Garðarsson