Nú í sumar skrifuðu handknattleiksdeild Gróttu og verktakafyrirtækið Slaki ehf undir samstarfssamning sín á milli.
Með samningnum verður Slaki ehf einn af aðalstyrktaraðilum deildarinnar og mun merki þeirra m.a prýða búninga yngri flokka félagsins.
Slaki ehf er eins og áður segir verktakafyrirtæki sem sinnir viðhalds- og viðgerðarvinnu á húsum og veita þeir vandaða, fljóta og góða þjónustu. Við hvetjum alla stuðningsmenn til að kynna sér þeirra þjónustu og hafa samband við þá ætli fólk sér í framkvæmdir. Allar upplýsingar á heimasíðunni þeirra www.slaki.is
Það er ávallt virðingarvert þegar einstaklingar og fyrirtækja eigendur taka sig til og styrkja íþróttastarfið í bænum og þökkum við Slaka ehf kærlega fyrir þeirra stuðning og hlökkum til samstarfsins!
Áfram Grótta!