Skip to content

Handbolti – Sumarstarf 2019

Handknattleiksdeild Gróttu verður, líkt og síðustu ár með öflugt sumarstarf fyrir börn og unglinga.

Í sumar (2019) verður boðið upp á handboltaaskóla í þrjár vikur, þ.e. frá 6. – 23. ágúst. Í handboltaskólanum verður börnum skipt eftir aldri til að koma til móts við þarfir hvers og eins. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn og flóknari æfingar fyrir eldri hópa.

Vandað verður til verka við val á þjálfurum og leiðbeinendum við skólann, líkt og undanfarin ár. Meðal þeirra sem koma að þjálfuninni eru leikmenn og þjálfarar handknattleiksdeildar. Byrjendur eru sérstaklega velkomnir á þessi námskeið.

Skólinn verður alla daga frá kl. 09:00 – 12:00, en boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:00 og að skóla loknum til kl. 13:00. Handboltaskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 23. ágúst.

Verð:
Vika 1 – kr. 5.200 (6. – 9. ágúst)
Vika 2 – kr. 6.500 (12. – 16. ágúst)
Vika 3 – kr. 6.500 (19. – 23. ágúst)
Ef allar vikur eru teknar kostar það 16.000 kr

Handknattleiksdeild Gróttu verður einnig með sérstakan afreksskóla en hann er starfræktur frá, 6. – 22. ágúst fyrir iðkendur sem verða í 5. og 4.flokki næsta vetur (f. 2004-2007).

Æfingar fara fram á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum kl. 12:30- 14:00 og á fimmtudögum kl. 14:00 – 15:30. Í afreksskólanum verður að miklu leyti farið í flóknari tækniatriði en í handboltaskólanum og meiri afrekshugsun í fyrirrúmi.

Verð:
Vika 1 – kr. 3.750 (6.- 8. ágúst)
Vika 2 – kr. 5.000 (12.-15. ágúst)
Vika 3 – kr. 5.000 (19. – 22. ágúst)
Ef allar vikurnar eru teknar þá kostar það 11.500 kr

Afreksskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 23.ágúst.

Innritun fer fram í gegnum rafrænt skráningakerfi Gróttu, Nóra https://grotta.felog.is

Nánari upplýsingar í síma 561-1133.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print