Skip to content

2. flokkur kvenna í 3. sæti Íslandsmótsins

2. flokkur kvenna lauk nýverið keppni í Íslandsmótinu og enduðu þær í 3. sæti mótsins. Stelpurnar spiluðu 14 leiki og unnu 10 þeirra og enduðu með 30 stig, líkt og FH sem var í 2. sæti en Hafnfirðingarnir voru með betri markatölu. Þrátt fyrir að hafa ekki æft mikið saman þar sem leikmennirnir æfðu flestir í sitthvoru lagi með meistaraflokkum Gróttu og KR, þá gekk sumarið mjög vel hjá stelpunum. Við óskum stelpunum til hamingju með þennan glæsta árangur ??

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print