Skip to content

Þrepamót FSÍ

Svanhildur Sunna, Lovísa, Ásdís, Ragnhildur, Ísól, Hildur og Agnes kepptu í 2. þrepi í síðasta hluta Þrepamóts FSÍ í dag. Svanhildur vann fjögur brons í flokki 12 ára og yngri, á tvíslá, slá, gólfi og í fjölþraut og Ásdís sigraði á slá. Í flokki 13 ára og eldri varð Hildur í 2. sæti í fjölþraut og á gólfi og í 3. sæti á tvíslá. Ísól varð í 3. sæti á slá og í 4. sæti í fjölþraut og Agnes sigraði á tvíslá.

Til hamingju með mótið stelpur og þjálfarar.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print