Skip to content

Forskráning fyrir veturinn 2020-21 hafin í fimleikadeild Gróttu

Í dag 5. júní hefst forskráning í fimleikadeild Gróttu fyrir veturinn 2020-2021, hægt er að skrá sig á https://grotta.felog.is

Við hvetjum ykkur til að skrá iðkendur í forskráningu því það er takmarkað pláss í hópana.

Greitt er 10.000 kr skráningargjald með kreditkorti eða greiðsluseðill við skráningu. Skráningargjaldið er óafturkræft en dregst frá æfingagjöldum næsta vetrar.

Athugið að biðlistinn fellur nú úr gildi og allir sem vilja komast að næsta vetur þurfa að forskrá sig.

Eftir að forskráningu líkur verður hægt að skrá á biðlista.

Skráning fyrir stubbafimi næsta vetur hefst 15 júli og það verður hægt að skrá sig á https://grotta.felog.is

Þá geta stubbar fæddir 2016 (4 ára), 2017 (3. ára) og 2018 (2. ára) skráð sig á haustnámskeið.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print