Skip to content

Bragi Björnsson nýr formaður Gróttu

Síðastliðinn miðvikudag fóru fram aðalfundir allra deilda og aðalstjórnar Gróttu. Á fundi aðalstjórnar urðu formannsskipti en Elín Smáradóttir sem verið hefur formaður félagsins frá árinu 2015 hætti og við keflinu tók Bragi Björnsson. Í formannstíð Elína hefur margt áorkast. Gróttu var treyst fyrir rekstri íþróttamannvirkja, umtalsverð hækkun var á þjónustusamningi Gróttu og Seltjarnarnesbæjar, félagið hélt upp á 50 ára afmæli sitt og framkvæmdir við stækkun íþróttamannvirkja hófust.

Um leið og Elínu er þakkað fyrir góð störf í þágu félagsins bjóðum við Braga velkominn til starfa.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print

Information

Skrifstofa Gróttu opin mánudag – fimmtudags
frá kl. 11:30 – 14:30.
Hafa samband

Aðalsími Gróttu: 561-1133
Símatími skrifstofu er 14:00 – 16:00 mánudag – fimmtudags.

Fréttaflokkar