Við leitum að yfirþjálfara í Stubbafimi!
Stubbafimi er fyrir yngstu iðkendur okkar, 1–4 ára. Markmið Stubbafimi er að kynna börnum fimleika í gegnum leik í öruggu, jákvæðu og gleðilegu umhverfi.
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem hefur gaman af því að starfa með ungum börnum. Starfið felur í sér að hafa umsjón með og skipuleggja æfingar fyrir okkar yngstu iðkendur. Um er að ræða hlutastarf (16 skipta námskeið) á vorönn. Kennt er á laugardags- og sunnudagsmorgnum.
Reynsla af starfi með ungum börnum er kostur en fyrst og fremst leitum við að einstaklingi með áhuga, frumkvæði og góða nærveru með börnum. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við okkur.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á netfangið [email protected].






