Grunnhópar Gróttu eru ætlaðir börnum á aldrinum 5–7 ára. Markmið starfsins er að vekja og viðhalda áhuga barnanna á fimleikum ásamt því að efla þol, snerpu, styrk, liðleika og samhæfingu í jákvæðu og hvetjandi umhverfi.
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem hefur gaman af því að starfa með ungum börnum og hefur áhuga á að leiða og styðja öflugt þjálfarateymi grunnhópa.
Starfið felur í sér yfirumsjón með starfsemi grunnhópa, skipulag æfinga og stuðning við þjálfara. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Reynsla af fimleikaþjálfun og starfi með börnum er kostur, en við leggjum einnig mikla áherslu á frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og góða samskiptahæfni.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við okkur á [email protected].


