Frá áramótum hafa verið gerðar ýmsar breytingar á skrifstofu félagsins.
Í janúar tók Erlendur Guðmundsson við sem íþrótta- og verkefnastjóri, en hann byrjaði sem verkefnastjóri sumarnámskeiða sumarið 2025 og var síðan í hlutastarfi fram að áramótum. Erlendur, sem er nýútskrifaður Íþróttafræðingur, tekur við umsjón með öllum íþróttamálum ásamt því sinna viðburðarhaldi í samvinnu við deildir og sjálfboðaliða Gróttu. Erlendur er Valsari að upplagi, en leikur í dag handbolta fyrir Fram í Úlfarsárdal.
Síðastliðinn maí hóf síðan nýr fjármálastjóri störf hjá félaginu, Tómas Sigurðsson. Ekki hefur verið eiginlegur fjármálastjóri Gróttu um einhverja stund en við bindum miklar vonir við að Tómas komi sterkur inn í starf félagsins. Tómas er með meistaragráðu í fjármálaverkfræði og var síðast fjármálastjóri Klettabæjar, áður en hann kom til okkar. Hann er uppalinn hér á Nesinu, flutti síðan í Garðabæinn og ætti því ekki að koma á óvart að hann er fremur lunkinn golfari.
Þá hefur Rakel Lóa Brynjarsdóttir látið af störfum sem samfélagsmiðlastjóri félagsins en hún tók við því hlutverki fyrr á þessu ári. Rakel Lóa mun þó áfram hjálpa meistaraflokk kvenna í sinni baráttu um sæti í Bestu deild kvenna, þær sitja um þessar mundir í efsta sæti Lengjudeildarinnar þegar sex leikir eru eftir. Við þökkum henni innilega fyrir sitt framlag og óskum henni velfarnaðar í öðrum hlutverkum sem hún gengur í innan félagsins.
Við erum þá komin með þriggja manna teymi á skrifstofunni, Erlendur og Tómas ásamt Fríðu framkvæmdarstjóra. Vonir standa til að félagsmenn fari að sjá raunverulegar breytingar á rekstri og virkni skrifstofunnar næstu mánuði.
#okkargrotta







