Skip to content

Lokahóf Handknattleiksdeildar Gróttu

Á miðvikudaginn fór fram lokahóf Handknattleiksdeildar Gróttu þar sem meistaraflokkar félagsins, þjálfarar, sjálfboðaliðar og starfsfólk kom saman og gerði upp tímabilið. Lokahófið var haldið í hátíðarsal félagsins í Hertz-höllinni.

Veittar voru viðurkenningar til þeirra sem sköruðu fram úr í vetur.

Meistaraflokkur kvenna

  • Mikilvægasti leikmaður – Ída Margrét Stefánsdóttir
  • Efnilegasti leikmaður – Elísabet Ása Einarsdóttir
  • Besti leikmaður – Andrea Gunnlaugsdóttir
  • Gróttubikarinn – Katrín Helga Sigurbergsdóttir

Meistaraflokkur karla

  • Mikilvægasti leikmaður – Antoine Óskar Pantano
  • Efnilegasti leikmaður – Gísli Örn Alfreðsson
  • Besti leikmaður – Gunnar Hrafn Pálsson
  • Gróttubikarinn – Ari Pétur Eiríksson

Þeir leikmenn sem höfuð náð leikjaáföngum voru verðlaunaðir en það voru:

50 leikir fyrir Gróttu

  • Arndís Áslaug Grímsdóttir (67 leikir)
  • Elísabet Ása Einarsdóttir (55 leikir)
  • Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir (69 leikir)
  • Hannes Pétur Hauksson (52 leikir)
  • Sæþór Atlason (52 leikir)

100 leikir fyrir Gróttu

  • Ída Margrét Stefánsdóttir (105 leikir)
  • Katrín Scheving (121 leikur)

200 leikir fyrir Gróttu

  • Hannes Grimm (216 leikir)

Við óskum þessum verðlaunahöfum til hamingju og hlökkum til að sjá þá og liðin okkar aftur í haust í baráttunni

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print

Information

Aðalsími Gróttu 561-1133
Skrifstofa Gróttu opin mánudag – fimmtudags
frá kl. 11:30 – 14:30
Hafa samband

Fréttaflokkar