Skip to content

Pétur Már í umfangsmeira hlutverki innan knattspyrnudeildarinnar – íþróttasálfræðiráðgjafi

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna um nýtt og umfangsmeira hlutverk Péturs Más Harðarsonar hjá knattspyrnudeild Gróttu.

Pétur kemur inn sem þjálfari 5. flokks karla til viðbótar við verkefni hans í 3. og 4. flokki karla. Auk þess mun Pétur gegna nýju hlutverki íþróttasálfræðiráðgjafa hjá félaginu. Í starfi sínu sem íþróttasálfræðiráðgjafi mun Pétur vinna náið með bæði með leikmönnum og þjálfurum knattspyrnudeildar. Um er að ræða nýtt hlutverk og verkefni innan félagsins þar sem lögð verður áhersla á að vinna með andlega þátt knattspyrnuiðkunar, til viðbótar við líkamlega þjálfun iðkenda.

Verkefnið er afar spennandi og metnaðarfullt af hálfu knattspyrnudeildar Gróttu og Péturs sem áhugavert verður að fylgjast með og sjá árangurinn af.

Pétur mun nýta næstu mánuði til að undirbúa og skipuleggja starf íþróttasálfræðiráðgjafa, ásamt því að hefja vinnu með þjálfurum og iðkendum knattspyrnudeildar. Áætlanir gera ráð fyrir að frá og með upphafi árs 2021 verði hlutverk íþróttasálfræðiráðgjafa skipulagt og orðið samþætt í starfsemi yngri flokka félagsins.

Chris Brazell, yfirþjálfari um starf íþróttasálfræðiráðgjafa:

„Ég er gríðarlega ánægður með innkomu Péturs Más í hlutverk íþróttasálfræðiráðgjafa, nokkuð sem við höfum unnið við að koma á fót undanfarna mánuði. Sífellt meiri áhersla er lögð á andlega þáttinn í knattspyrnuþjálfun, bæði í barna- og unglingastarfi og afreksþjálfun. Ráðning Péturs er brautryðjendastarf af hálfu Gróttu og sýnir metnað félagsins í verki.“

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print

Helstu upplýsingar

Aðalsími Gróttu 561-1133
Skrifstofa Gróttu opin virka daga
frá kl. 13:00 – 16:00
grotta@grotta.is

Fréttaflokkar