Handknattleiksdeild Gróttu er að byrja með æfingar fyrir krakka á leikskólaaldri fædda 2016 og 2017. Æfingarnar eru á laugardögum kl. 09:40-10:30 og fara fram í litla salnum í íþróttahúsinu. Þjálfarar eru Arndís María Erlingsdóttir og Hulda Björk Halldórsdóttir.
Í fyrsta skipti gefst krökkum á leikskólaaldri að kynnast handbolta með reglubundnum æfingum einu sinni í viku. Lögð verður áhersla á skemmtilega leiki með og án bolta og grunnatriði handbolta kennd með fjölbreyttri hreyfingu. Fyrsta æfing verður 4.september. Við hvetjum alla til prófa. Frítt verður að prófa fyrstu æfingar.
Skráning fer fram í Sportabler sportabler.com/shop/grotta/handbolti og er verðið fyrir haustönnina 19.900 kr. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á netfangið maksim@grotta.is.