Árlegt kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2025 fór fram á þriðjudagskvöld. Handknattleiksfólk var fyrirferðamikið á hátíðinni og meðal annars í kjöri á íþróttakonu Gróttu. Ída Margrét Stefánsdóttir var tilnefnd frá handboltanum og Lovísa Davíðsdóttir Scheving frá knattspyrnudeild. Það var síðan Ída sem hlaut titilinn íþróttakona Gróttu.
Ída Margrét er fædd árið 2002 og er rétthent skytta. Ída Margrét hóf handknattleiksiðkun sína ung að árum og kemur úr mikilli handboltafjölskyldu. Hún kom fyrst til Gróttu á láni árið 2021. Hún staldraði þó stutt við það tímabilið þar sem hún var fljótlega kölluð til baka til Vals. Frá árinu 2022 hefur hún verið lykilleikmaður Gróttuliðsins og myndar í dag fyrirliðateymi liðsins með Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur. Ída hefur leikið 85 leiki með Gróttu.
Gróttuliðið lék í Olísdeildinni meðal bestu liða landsins á seinasta leiktímabili. Liðið féll eftir hetjulega baráttu. Grótta komst alla leið í Final4 í bikarkeppninni og mætti þar stjörnuprýddu liði Hauka. Haukakonur voru sterkari og uppskáru að lokum bikarmeistaratitilinn.
Ída er stórskytta og var markahæsti leikmaður liðsins á seinasta tímabili í Olísdeildinni. Hún hefur haldið uppteknum hætti í vetur og er langmarkahæsti leikmaður Gróttu hingað til með 7 mörk að meðaltali í hverjum leik. Auk þess er hún frábær varnarleikmaður og fyrirmynd.
Á lokahófi handknattleiksdeildar Gróttu í vor þá var Ída Margrét valin mikilvægasti leikmaður liðsins.
Ída er mikil keppnismanneskja og leggur sig ávallt alla fram í öll verkefni, tekur leiðsögn vel og getur náð enn lengra á næstu árum. Það er virkilega gleðileg tíðindi fyrir jólin að hún ákvað að framlengja samninginn sinn við Gróttu til ársins 2029.
Myndir: Eyjólfur Garðarsson






