Skip to content

Antoine Óskar er íþróttamaður Gróttu 2025

Árlegt kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2025 fór fram í gærkvöldi. Handknattleiksfólk var fyrirferðamikið á hátíðinni og meðal annars í kjöri á íþróttamanni Gróttu. Antoine Óskar Pantano var tilnefndur frá handboltanum og Grímur Ingi Jakobsson frá knattspyrnudeild. Antoine hlaut nafnbótina íþróttamaður Gróttu árið 2025.

Antoine Óskar er fæddur árið 2006 og er að leika á sínu fjórða leiktímabili með Gróttu þrátt fyrir ungan aldur. Grótta lék fyrri hluta ársins í Olísdeildinni á meðal bestu liða landsins en liðið þurfti að bíta í það súra epli að falla niður í næstefstu deild, Grill 66-deildina eftir spennandi fallbaráttu.

Hann er mikill leiðtogi sem lýsir sér best að hann er annar af tveimur fyrirliðum meistaraflokks karla. Hann hefur skoraði 85 mörk fyrir Gróttu í vetur og leikur lykilhlutverk í varnarleik liðsins.

Antoine lét sér það ekki nægja að leika með meistaraflokki á seinasta leiktímabili því hann lék með 3.flokki karla sem gerði sér lítið fyrir og varð bikarmeistari í mars og endaði í 2.sæti Íslandsmótsins eftir framlengdan úrslitaleik. Antoine var lykilleikmaður liðsins, fyrirliði og með hæfileikum sínum gerði hann alla leikmenn í kringum sig betri.

Antoine hefur verið fastamaður í unglingalandsliðum Íslands og verið þar fyrirliði. Vegna meiðsla sem hann glímdi við á seinasta leiktímabili gat hann ekki tekið þátt í landsliðsverkefnum síðastliðið sumar. Þar stóð hæst HM í Egyptalandi í ágúst.

Antoine Óskar hefur undanfarin þrjú árin verið þjálfari yngri flokka hjá félaginu og af honum fer virkilega góður orðstír. Hann hefur verið í forgrunni fyrir mikla uppbyggingu og fjölgun í vesturbæjarstarfi yngstu flokka félagsins. Samhliða því hefur hann verið aðstoðarþjálfari hjá eldri flokkum og nú í vetur annar af þjálfurum 5.flokks karla. Hann miðlar sinni þekkingu, reynslu og leiðtogahæfileikum til yngri iðkenda félagsins.

Myndir: Eyjólfur Garðarsson

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print