Skip to content

Tinna Brá á leið til Ungverjalands með U17 ára landsliðinu

Tinna Brá Magnúsdóttir hefur verið valin í leikmannahóp U17 ára landsliðsins sem tekur þátt í milliriðli í Ungverjalandi 16.-25. mars. Ísland er þar í riðli með Rússlandi, Ungverjalandi og Rúmeníu. Tinna Brá er gríðarlega efnilegur markmaður en hún er á sextánda aldursári.

Knattspyrnudeild Gróttu óskar Tinnu Brá innilega til hamingju með valið.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print