Skip to content

Spes Kitchen og Grótta skrifa undir samstarfssamning

Veitingastaðurinn Spes Kitchen og Handknattleiksdeild Gróttu skrifuðu fyrr í sumar undir samstarfssamning sín á milli.

Með samningnum verður Spes Kitchen einn af styrktaraðilum deildarinnar en samningurinn felur einnig í sér þá nýjung að handhafar heimaleikjakorta Gróttu Handbolta munu njóta afsláttar gegn framvísun kortsins þegar þeir kaupa mat hjá Spes en við hlökkum mikið til að segja ykkur nánar frá þessari nýjung á heimaleikjakortunum okkar!

Spes Kitchen sem var opnaður árið 2020 er staðsettur á Mathöll Granda og bjóða þau upp á hágæða mat sem er jafnframt 100% vegan. Við mælum sérstaklega með hamborgaranum!

Við þökkum Spes Kitchen kærlega fyrir stuðninginn og hvetjum alla íbúa á Seltjarnarnesi og stuðningsmenn Gróttu að renna við í Mathöll Granda og gæða sér á frábærum mat Spes Kitchen en matseðil þeirra má nálgast hér https://www.facebook.com/speskitchen/. Smellið endilega í LIKE á síðuna þeirra líka!

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print