Skip to content

Skráning í stubbafimi vorönn 2024 hefst 1. desember nk

Skráning í stubbafimi vorönn 2024 hefst 1. desember inn á vefverslun Sportabler sportabler.com/shop/grotta (skráning opnast á hádegi).

Stubbafimi er ætluð yngstu iðkendunum. Áhersla lögð á grundvallarhreyfigetu og líkamsvitund með fjölbreyttum æfingum.

Markmiðið er að vekja áhuga á fimleikum, byggja upp góðan grunn fyrir áframhaldandi fimleikaiðkun, kenna jákvæðan aga og reglur sem gilda í salnum.

Fyrirkomulagið er á þann hátt að 3 ára og 4 ára börn æfa án foreldra í tímunum en fyrstu tveir tímar annarinnar er leyfilegt að fylgjast með til að auðvelda aðlögun. 1 árs og 2 ára stubbar eru með foreldrum í salnum.

Nánari upplýsingar um tímasetningar koma þegar nær dregur.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print