Skip to content

Aðalfundur Gróttu fer fram 29. apríl

Aðalfundir aðalstjórnar og deilda Íþróttafélagsins Gróttu fara fram fimmtudaginn 29. apríl 2021.

Aðalfundirnir hefjast kl. 17:00 og er gert ráð fyrir að þeim sé lokið kl. 18:00. Eftir að aðalfundum lýkur verður öllum fundargestum boðið upp á léttar veitingar.

Verði samkomutakmarkanir með þeim hætti að ómögulegt sé að bjóða til aðalfundar í okkar húsakynnum mun aðalfundurinn fara fram rafrænt.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print