Íþróttafélagið Grótta er í átaki að leita uppi ljósmyndir úr starfi Gróttu í gegnum tíðina. Hrafnhildur Thoroddsen sem kemur til okkar þrisvar í viku og er byrjuð að skanna allar þær myndir sem hafa safnast saman síðastliðin ár hjá okkur á skrifstofu Gróttu.
Við byrjuðum fyrir jól að kynna átakið á Facebook síðu Gróttu og höfum við fengið fjöldan allan af ljósmyndum. Við setjum inn gamlar Gróttumyndir á Facebook síðu okkar í hverri viku. Sjá hér.
Við viljum líka taka við stafrænum myndum sem við getum geymt á skýinu okkar. Nánar upplýsingar gullijons@grotta.is
![](https://b1752376.smushcdn.com/1752376/wp-content/uploads/2020/12/hrafnhildur-768x1024.jpg?lossy=1&strip=1&webp=1)
![](https://b1752376.smushcdn.com/1752376/wp-content/uploads/2021/03/grotta_gamlar_myndir_1-1024x604.png?lossy=1&strip=1&webp=1)