Stubbafimi er ætluð yngstu iðkendunum fimleikadeildar Gróttu. Áhersla lögð á grundvallarhreyfigetu og líkamsvitund með fjölbreyttum æfingum. Markmiðið er að vekja áhuga á fimleikum, byggja upp góðan grunn fyrir áframhaldandi fimleikaiðkun, kenna jákvæðan aga og reglur sem gilda í salnum.
Fyrsti stubbatími haustannar verður laugardaginn 5. september og sá síðasti 21. nóvember, kennt er á laugardagsmorgnum í 50 mín. Skráning fer fram hér: grotta.felog.is
- 2 ára stubbar (börn fædd 2018)
- 3 ára stubbar (börn fædd 2017)
- 4 ára stubbar (börn fædd 2016)
Fyrirkomulagið er á þann hátt að 3 ára og 4 ára börn (fædd 2017 og 2018) æfa án foreldra í tímunum en fyrstu tveir tímar annarinnar er leyfilegt að fylgjast með til að auðvelda aðlögun. 2 ára stubbar eru með foreldrum í salnum.
Skráning fer fram hér: grotta.felog.is
Nánari upplýsingar veitir Vala Thoroddsen, framkvæmdastjóri fimleikadeildar Gróttu fimleikadeild@grotta.is eða í síma 561-1137