Íþróttafélagið Grótta auglýsir laus sumarstörf 2024 til umsóknar fyrir ungt fólk.

Verkefnastjóri sumarnámskeiða Gróttu

Íþróttafélagið Grótta býður uppá sumarnámskeið fyrir krakka á fjölbreyttum aldri. Starf verkefnastjóra er ábyrgðarstarf en í því felst skipulagning og umsjón allra sumarnámskeiða Gróttu 2024. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og unnið er til 23. ágúst 2024.

Helstu verkefni: Skipulagning og umsjón allra sumarnámskeiða Gróttu. Umsjón með ráðningum flokkstjóra í samstarfi við við verkefnastjóra Gróttu, leiðsögn þeirra og eftirlit. Ábyrgð á störfum flokkstjóra, stýring verkefna og ábyrgð á viðveruskráningu hópa.

Starfstímabil

  • 13. maí – 12. júlí.
  • 6. – 23. ágúst.
  • Eða eftir samkomulagi.
  • Sumarfrí  13. júlí – 5. ágúst.

Hæfniskröfur

  • Umsækjendur skulu vera 20 ára og eldri (fædd 2004 og eldri).
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð fyrirmynd og heilbrigður lífsstíll
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð

Menntun, þekking og/eða reynsla tengd tómstundastarfi, kennslu eða íþróttum.

Umsækjendur skulu sækja um ofangreint starf á heimasíðu www.alfred.is | Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2024.

Flokkstjórar sumarnámskeiða

Starf flokkstjóra felst í að hafa umsjón með og skipuleggja daglegt starf á sumarnámskeiðum í samvinnu við verkefnastjóra.

Hann annast þátttöku, leiðsögn og skipulagningu á námskeiðinu fyrir börn á aldrinum: 

  • Leikjanámskeið (börn fædd 2017 og 2016).
  • Ævintýranámskeið (börn fædd 2015 og 2014).
  • Survivornámskeið (börn fædd 2013-2011).
  • Smíðavöllur (börn fædd 2015 og eldri).

Helstu verkefni:

Flokkstjórar skipuleggja og stýra sumarnámskeiðum Gróttu í samvinnu við verkefnastjóra. Hafa umsjón og skipuleggja daglegt starf. Þátttaka og leiðsögn á hópastarfi á vettvangi. Vinnur í samstarfi við starfsmenn, foreldra/forsjáraðila og aðra sem koma að starfi sumarnámskeiðanna. Undirbúningur og frágangur í upphafi/lok dags.

Starfstímabil:

  • 20. maí -12. júlí.
  • 6. – 16. ágúst 2024.
  • Sumarfrí 13. júlí – 5. ágúst.

Hæfniskröfur: 

  • Umsækjendur skulu vera 20 ára og eldri (fædd 2004 og eldri).
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð fyrirmynd og heilbrigður lífsstíll. Stundvísi og samviskusemi.
  • Hreint sakavottorð.

Umsækjendur skulu sækja um ofangreind störf á heimasíðu www.alfred.is | Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2024. 

Umsækjendur athugið að starfsmenn kunna að vera fluttir á milli verkefna og starfsstöðva í samráði við yfirmenn.

Leiðbeinendur á sumarnámskeiðum Gróttu

Íþróttafélagið Grótta vill ráða ungt fólk 18 ára og eldri (fædd 2006 og eldri) í störf leiðbeinanda á sumarnámskeiðum félagsins.

Helstu verkefni: Leiðbeina börnum á sumarnámskeiðum Gróttu.

Starfstímabil

  • 10. júní – 12. júlí.
  • 6. ágúst – 16. ágúst.
  • Sumarfrí 13. júlí – 5. ágúst.

Starfssvið:

  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk sumarnámskeiða og aðra sem koma að starfi sumarnámskeiðanna.

Hæfniskröfur:

  • Umsækjendur skulu vera 18 ára og eldri (fædd 2006 og eldri)
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð fyrirmynd og heilbrigður lífsstíll
  • Stundvísi og samviskusemi 
  • Hreint sakavottorð

Umsækjendur skulu sækja um ofangreind störf á heimasíðu www.alfred.is | Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2024.

Umsækjendur athugið að starfsmenn kunna að vera fluttir á milli verkefna og starfsstöðva í samráði við yfirmenn.

Leiðbeinendur í fimleika- og leikjaskóla Gróttu

Íþróttafélagið Grótta vill ráða ungt fólk 18 ára og eldri (fædd 2006 og eldri) í störf leiðbeinanda í fimleika- og leikjaskóla Gróttu.

Helstu verkefni: Leiðbeina börnum í fimleika- og leikjaskóla Gróttu

Starfstímabil

  • 10. júní – 12. júlí.
  • 6. ágúst – 16. ágúst.
  • Sumarfrí  13. júlí – 5. ágúst.

Starfssvið: Leiðbeina börnum í fimleikum, leik og starfi. Samráð og samvinna við börn og starfsfólk. Samskipti og samstarf við foreldra og aðra sem koma að starfi fimleika- og leikjaskólans.

Hæfniskröfur:

  • Umsækjendur skulu vera 18 ára og eldri (fædd 2006 og eldri)
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð fyrirmynd og heilbrigður lífsstíll
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð

Umsækjendur skulu sækja um ofangreind störf á heimasíðu www.alfred.is | Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2024.

Leiðbeinendur í handbolta- og afreksskóla Gróttu

Íþróttafélagið Grótta vill ráða ungt fólk 18 ára og eldri (fædd 2006 og eldri) í störf  leiðbeinanda í handbolta- og afreksskóla Gróttu.

Helstu verkefni: Leiðbeina börnum í handbolta- og afreksskóla Gróttu.

Starfstímabil

  • 29. júní – 21. ágúst.

Starfssvið: Leiðbeina börnum í handbolta og fleiru. Samráð og samvinna við börn og starfsfólk. Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk sumarnámskeiða og aðra sem koma að starfi handbolta- og afreksskólans.

Hæfniskröfur:

  • Umsækjendur skulu vera 18 ára og eldri (fædd 2006 og eldri)
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð fyrirmynd og heilbrigður lífsstíll
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð

Umsækjendur skulu sækja um ofangreind störf á heimasíðu www.alfred.is | Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2024.

Leiðbeinendur í knattspyrnuskóla Gróttu

Íþróttafélagið Grótta vill ráða ungt fólk 18 ára og eldri (fædd 2006 og eldri) í störf  leiðbeinanda í knattspyrnuskóla Gróttu.

Helstu verkefni: Leiðbeina börnum í knattspyrnuskóla Gróttu.

Starfstímabil

  • 10. júní – 26. júlí.

Starfssvið: 

  • Leiðbeina börnum í fótbolta og fleiru.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk sumarnámskeiða og aðra sem koma að starfi handbolta- og afreksskólans.