Skip to content

Óskar Hrafn tekur við meistaraflokki karla

Knattspyrnudeild Gróttu hefur gengið frá ráðningu Óskars Hrafns Þorvaldssonar sem þjálfara meistaraflokks karla.

Óskar er Gróttufólki að góðu kunnur en hann hefur þjálfað yngri flokka félagsins síðustu tvö ár við góðan orðstír.

Óskar tekur við liðinu af Þórhalli Dan Jóhannssyni.

„Við fögnum því mjög að fá Óskar til að stýra meistaraflokki. Hann hefur komið feikilega sterkur inn í yngri flokka starf Gróttu síðustu ár og unnið þar af mikilli fagmennsku og metnaði,“ segir Sölvi Snær Magnússon formaður knattspyrnudeildar Gróttu.

„Óskar hefur á þjálfaraferli sínum margoft hjálpað efnilegum leikmönnum við að taka skref framávið og verður spennandi að fylgjast með honum vinna með góðum kjarna ungra Gróttumanna sem eru að hefja sinn meistaraflokksferil.“

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print