Skip to content

Loksins eru STUÐningsmannakort Gróttu komin í sölu

Grótta handknattleiksdeild býður upp aðgangskort sem að veita aðgang fyrir tvo að öllum heimaleikjum á Íslandsmóti meistaraflokka félagsins leiktíðina 2023-2024.

Kortin eru á mismunandi verðum en innihaldið er það sama. Með þessu er Grótta að setja upphæðina sem að STUÐningsmenn félagsins vilja styrkja félagið um í þeirra eigin hendur.

Smelltu hér til að ganga frá kaupum á STUÐningsmannakorti Gróttu
stubb.is/grotta/passes

Kortin nefnast GULL-SILFUR og BRONS stuðningsmannakort og eru eru aðgengileg í gegnum smáforritið Stubb sem er fáanlegt fyrir farsíma.

  • Gull stuðningsmannakort inniheldur aðgang fyrir tvo inn á alla heimaleiki meistaraflokka handknattleiksdeildar. Kortið kostar 80.000 krónur-hægt er að staðgreiða kortið eða velja greiðsludreifingu í 12 mánuði.
  • Silfur stuðningsmannakort inniheldur aðgang fyrir tvo inn á alla heimaleiki meistaraflokka handknattleiksdeildar. Kortið kostar 40.000 krónur-hægt er að staðgreiða kortið eða velja greiðsludreifingu í 12 mánuði.
  • Brons stuðningsmannakort inniheldur aðgang fyrir tvo inn á alla heimaleiki meistaraflokka handknattleiksdeildar. Kortið kostar 20.000 krónur-hægt er að staðgreiða kortið eða velja greiðsludreifingu í 12 mánuði.

Einnig höfum við ákveðið að bjóða upp á svokallað Foreldrakort (fyrir forráðamenn iðkenda).

  • Foreldrakort veitir aðgang fyrir einn inn á alla heimaleiki meistaraflokka handknattleiksdeildar. Kortið kostar 15.000 krónur í staðgreiðslu.

Tryggið ykkur kort í tíma fyrir æsispennandi vetur-stútfullan af handbolta! Áfram Grótta

Smelltu hér til að ganga frá kaupum á STUÐningsmannakorti Gróttu
stubb.is/grotta/passes

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print