Skip to content

Lárus til Gróttu

Markmaðurinn Lárus Gunnarsson hefur skrifað undir 2ja ára samning við handknattleiksdeild Gróttu.

Lárus sem er 25 ára og uppalinn hjá félaginu er Gróttu-fólki vel kunnugur. Hann á að baki yfir 100 leiki með meistaraflokki félagsins auk leikja með U-17 og U-20 ára landsliði Íslands.

Lárus spilaði síðast með Stjörnunni í Olís-deildinni tímabilið 2017-2018 en tók sér frí á núverandi
keppnistímabili. Hann sat þó ekki auðum höndum þetta tímabilið og þjálfar 5.flokk kvenna hjá Gróttu auk þess að þjálfa markmenn félagsins.

Lárus sagði við undirskriftina: „Grótta verður með ungt lið næsta tímabil sem mun berjast fyrir hverju stigi. Eftir árs frí frá handbolta rann mér blóðið til skyldunnar að taka fram skónna og hjálpa klúbbnum að komast upp í deild þeirra bestu á nýjan leik.”

Þórir Jökull úr stjórn handknattleiksdeildar var ánægður við undirskriftina og sagði: „Þessi samningur við Lalla endurseglar þann metnað deildarinnar að gefa ekkert eftir í starfinu og koma karlaliðinu aftur í efstu deild.“

Frekari fregna af leikmanna- og þjálfaramálum meistaraflokks er að vænta á næstu dögum.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print