Kristófer Melsted hefur framlegt samning sinn við knattspyrnudeild Gróttu út árið 2023. Kristófer er uppalinn Gróttumaður en hann á að baki 95 leiki fyrir Gróttu. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Gróttu árið 2016 og hefur síðustu ár verið einn lykilmanna liðsins en hann lék 20 leiki á síðasta tímabili í Lengjudeildinni og skoraði í þeim tvö mörk. Samningurinn er Gróttu sérstakt fagnaðarefni þar sem Kristófer er mikil fyrirmynd ungra íþróttamanna hjá félaginu, innan sem utan vallar.
