Skip to content

Knattspyrnudeild semur við Þórhall Dan

Þórhallur Dan Jóhannsson er nýr þjálfari meistaraflokks karla en hann skrifaði undir tveggja ára samning í kvöld. Hann tekur við liðinu af Úlfi Blandon sem hætti á dögunum eftir að hafa stýrt Gróttu upp í Inkasso-deildina í sumar.

Þórhallur Dan hefur undanfarin tvö ár verið aðstoðarþjálfari hjá Haukum en hann hætti þar eftir tímabilið á sama tíma og Luka Kostic hætti sem þjálfari.

„Þórhallur er reyndur leikmaður og þjálfari sem náði ásamt Luka Kostic eftirtektarverðum árangri með ungt lið Hauka svo hann passar vel inn hjá okkur,“

segir Hilmar S Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar

Þórhallur Dan var áður þjálfari hjá Álftanesi í 3. deildinni árin 2011 og 2012.

Á sínum tíma spilaði Þórhallur lengi í efstu deild með Fylki og Fram áður en hann kláraði ferilinn í Haukum þar sem hann hjálpaði liðinu upp úr annarri deild í Pepsi-deildina og spilaði með liðinu þar árið 2010.

Knattspyrnudeild býður Þórhall velkominn á Nesið og hlakkar til samstarfsins!

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print