Önnur vika handboltaskóla Gróttu kláraðist í dag með skemmtilegri HM keppni milli liða. Allir þjáfarar handboltaskólans fengu úthlutað landsliði og hófst skemmtileg keppni á milli liða. ???♂️
Í dag spiluðu lið Nígeríu úrslitaleik á móti liði Brasilíu og var mikil stemming. Spilað var á stórum velli með öflugum þuli og skemmtilegri tónlist.

Handboltaskólinn var vel sóttur og var mikil stemming á námskeiðinu. Líkt og á námskeiði eitt var öflugt þjálfarateymi sem sá um námskeiðið.
VIKA 3 í handbolta- og afreksskólann hefst á mánudaginn kemur 17. ágúst og stendur til 21. ágúst. Hægt er að skrá börn á viku þrjú í gegnum Nóra kerfið https://grotta.felog.is
- Handboltaskólinn er fyrir börn fædd 2009-2014 ?♂️
- Afreksskólinn er fyrir börn fædd 2005-2008 ?♀️
Nánari upplýsingar um skólana er að finna á grotta.is/handknattleiksdeild/handboltanamskeid-grottu-2020
Upplýsingar fást einnig á skrifstofu Gróttu í síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected], [email protected] eða [email protected]